Tryggvi þáði fjóra pelsa og er slétt sama um gagnrýnina Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. janúar 2017 09:30 Sonul Badiani Hamment frá PETA og Tryggvi Hansen sem fékk fjóra pelsa í gær. Fréttablaðið/Vilhelm „
Við erum hér til að hjálpa heimilislausum á Íslandi. Við myndum aldrei vilja skaða þá,“ segir Sonul Badiani Hamment, sem kom með tvö hundruð pelsa frá dýraverndunarsamtökunum PETA til að gefa heimilislausu fólki. Fjölskylduhjálp Íslands deilir út pelsunum sem eru merktir með litum. Er fréttir af þessu bárust í gær gagnrýndu margir þessa tilhögun. „Þetta er fyrst og fremst niðurlægjandi fyrir þann sem ætlar að gefa þetta. Að ætla að merkja fólk sem er fátækt,“ sagði Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, við Vísi. „Mér finnst nú bara núna að þeir sem eru að stýra eins og velferðarkerfinu og slíku eigi að bara að taka sig til og segja stopp og hingað og ekki lengra. Við getum ekki verið að merkja og í rauninni að brennimerkja fólk sem er fátækt á þennan hátt,“ sagði Guðrún Ögmundsdóttir, tengiliður vistheimila, í samtali við RÚV.Ég er ekkert stressaður yfir því að teljast vera fátækur,“ Tryggvi Hansen.Hefja á útdeilingu pelsanna í dag. Tryggvi Hansen, sem býr í skóglendi í útjaðri borgarinnar, fékk þó að velja sér pels strax í gær og gekk út með fjögur stykki. Hann setur ekki fyrir sig að pelsarnir séu merktir. „Mér finnst þetta allt í lagi persónulega. Þeir sem fíla þetta ekki sleppa því bara að taka pelsana,“ segir Tryggvi. Hann hafi ekkert á móti því að auglýsa dýraverndunarsjónarmið. „Og ég er ekkert stressaður yfir því að teljast vera fátækur, ríkidæmi er bara hreint djók.“ Sonul Badiani Hamment segir einu ástæðuna fyrir því að merkja pelsana eindregna afstöðu PETA gegn grimmd í pelsaiðnaðinum. „Við merkjum þá til að tryggja að ekki sé hægt að græða á þeim en að þau dýr sem hafa dáið fyrir þessa pelsa geti komið að góðum notum fyrir fólk sem þjáist í kuldanum á Íslandi,“ segir Sonul. Ásgerður Jóna Flosadóttir, starfandi formaður hjá Fjölskylduhjálpinni, segist undrast gagnrýni sem fram hafi komið og nefnir sérstaklega ákall Guðrúnar Ögmundsdóttur um að þeir sem stýri velferðarkerfinu „segi stopp“ vegna málsins.Tryggvi Hansen með Gunnari Árnasyni félaga sínum.Fréttablaðið/Vilhelm„Mér finnst eins og Guðrún sé að hóta okkur,“ segir Ásgerður. Fjölskylduhjálpin sé langstærstu hjálparsamtökin í matargjöfum á Íslandi. Þau séu rekin án yfirbyggingar. „Það virðist fara afskaplega í taugarnar hjá ráðafólki hjá borginni. Það er skrítið hvað vinstri vængurinn hefur á móti okkur. Alltaf ef hægt er að gagnrýna okkur þá er það gert.“ Sonul Badiani Hamment segir mjög auðvelt að sjá neikvæðar hliðar á hlutum. „Þetta hefur ekkert að gera með það að draga fólk í dilka eða slíkt. Við óskum þess eins að fólk geti séð það góða í öðrum og það góða sem við erum að reyna að gera.“ Gunnar Árnason gerði Tryggva félaga sínum viðvart um pelsana og ók honum í Fjölskylduhjálpina. „Hann Tryggvi er ekkert eini maðurinn á Íslandi sem býr ekki í húsi. Ef þetta fólk má ekki hlýja sér á þessum minkum þá á ég ekki til orð lengur,“ segir Gunnar. Auk pelsanna sem Tryggvi fékk var fimm pelsum ráðstafað strax í gær, þar af fóru þrír til félagsins Villikatta sem hyggst nota þá í búr fyrir dýrin.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Stóra pelsamálið: „Það er hipp og kúl að vera í svona spreyjuðum pelsum“ Ásgerður Jóna segir af og frá að verið sé að lítilsvirða fátæka með spreyjuðum pelsum. 24. janúar 2017 16:41 Stóra pelsamálið: „Þetta er fyrst og fremst niðurlægjandi fyrir þann sem ætlar að gefa þetta“ Sitt sýnist hverjum um pelsana sem Fjölskylduhjálp Íslands ætlar að gefa fátækum og heimilislausum. 24. janúar 2017 13:52 Afkomandi huldufólks býr í skógarrjóðri við Reykjavík Náttúruunnandinn Tryggvi Gunnar Hansen hefur frá því í maí hafst við í tjaldbúð í skóglendi í jaðri Reykjavíkur. Tryggvi segir sig afkomanda og merkisbera fólks sem hafi verið hér fyrir "svikalandnám víkinga“ og vill að Íslendingar snúi í torfkofana. 29. september 2015 06:00 Ósátt kona í úthverfi safnar liði og leitar að Tryggva Gunnari Hansen „Ég mun fara þarna um og leita,“ segir kona sem býr í einu úthverfa höfuðborgarsvæðisins og telur ótækt að listamaðurinn Tryggvi Gunnar Hansen hafi hreiðrað um sig til búsetu í skógarrjóðri. 30. september 2015 07:00 Mest lesið Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Innlent Margir í vandræðum í Kömbunum Innlent Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Erlent Milton safnar aftur krafti Erlent Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Erlent Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Innlent Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Erlent Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Innlent Fleiri fréttir Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Ekkert á hreinu um næstu kosningar Snjóþekja á Hellisheiði Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Kennarar greiða atkvæði um verkfall Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Yazan og fjölskylda komin með vernd „Þetta er bara órætt okkar á milli“ Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Skjáskotin hafi ekki farið í dreifingu Innan við helmingur nú hlynntur flugvelli í Vatnsmýri „Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Sjá meira
Stóra pelsamálið: „Það er hipp og kúl að vera í svona spreyjuðum pelsum“ Ásgerður Jóna segir af og frá að verið sé að lítilsvirða fátæka með spreyjuðum pelsum. 24. janúar 2017 16:41
Stóra pelsamálið: „Þetta er fyrst og fremst niðurlægjandi fyrir þann sem ætlar að gefa þetta“ Sitt sýnist hverjum um pelsana sem Fjölskylduhjálp Íslands ætlar að gefa fátækum og heimilislausum. 24. janúar 2017 13:52
Afkomandi huldufólks býr í skógarrjóðri við Reykjavík Náttúruunnandinn Tryggvi Gunnar Hansen hefur frá því í maí hafst við í tjaldbúð í skóglendi í jaðri Reykjavíkur. Tryggvi segir sig afkomanda og merkisbera fólks sem hafi verið hér fyrir "svikalandnám víkinga“ og vill að Íslendingar snúi í torfkofana. 29. september 2015 06:00
Ósátt kona í úthverfi safnar liði og leitar að Tryggva Gunnari Hansen „Ég mun fara þarna um og leita,“ segir kona sem býr í einu úthverfa höfuðborgarsvæðisins og telur ótækt að listamaðurinn Tryggvi Gunnar Hansen hafi hreiðrað um sig til búsetu í skógarrjóðri. 30. september 2015 07:00