Viðskipti innlent

Sigurður Már áfram fjölmiðlafulltrúi ríkisstjórnarinnar

atli ísleifsson skrifar
Sigurður Már Jónsson.
Sigurður Már Jónsson. Vísir/gva
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um að Sigurður Már Jónsson gegni áfram stöðu fjölmiðlafulltrúa ríkisstjórnarinnar.

Sigurður Már er ráðinn til starfans á grundvelli 1. mgr. 22. gr. laga um Stjórnarráð Íslands og hefur aðsetur í forsætisráðuneytinu.

Sigurður Már var ráðinn fjölmiðlafulltrúi ríkisstjórnar árið 2013, en hafði þar áður starfað sem blaðamaður frá árinu 1985.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×