Úrslit ljós í Hnakkaþoninu 2017 nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 22. janúar 2017 11:53 Sigurliðið skipa nemendur í fjármálaverkfræði og viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík. vísir/hnakkaþon 2017 „
Wild Icelandic Cod“ er vinningstillaga Hnakkaþonsins 2017 sem fram fór nú um helgina. Úrslit keppninnar voru tilkynnt í gær en sigurliðið skipa nemendur í fjármálaverkfræði og viðskiptafræði, þeir Bjarki Þór Friðleifsson, Fannar Örn Arnarsson, Jóhannes Hilmarsson, Ómar Sindri Jóhannsson og Sigurður Guðmundsson. Hópurinn mun heimsækja Seafood Expo North America, stærstu sjávarútvegssýningu N-Ameríku í Boston í mars, í boði Icelandair Group og sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi. Hnakkaþonið fór fram dagana 19. janúar til 21. janúar en á Facebook-síðu keppninnar segir að Hnakkaþon sé „samkeppni fyrir upprennandi sérfræðinga í markaðsmálum, hugbúnaði, tækni og vörustjórnun til að sanna hæfni sína og hæfileika í að þróa og útfæra lausnir fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi. Áskorun Hnakkaþonsins tengist sjávarútvegi, einum af meginatvinnuvegum þjóðarinnar.“ Keppnin er opin öllum nemum Háskólans í Reykjavík. Þetta er í þriðja sinn sem Háskólinn Reykjavík (HR) og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) standa Hnakkaþoni. Að þessu sinni unnu nemendur HR með útgerðarfyrirtækinu Vísi í Grindavík, Marel og prentsmiðjunni Odda en áherslan var á pökkun á ferskfiski. Fimm lið skiluðu inn tillögum. Í fréttatilkynningu segir að vinningstillagan sé hugmynd að nýjum og umhverfisvænum neytendapakkningum fyrir Vísi í Grindavík sem mun nota pakkningarnar fyrir íslenskan fisk á bandarískum markaði ef tillagan nær fram að ganga. Á umbúðunum eru einnig einfaldar uppskriftir fyrir neytendur fisksins. Ari Kristinn Jónsson rektor HR sagði við verðlaunaafhendinguna að öll liðin hefðu skilað inn frambærilegum tillögum. „Viðfangsefni keppninnar í þetta sinn var að setja fram ítarlegar tillögur um hvernig þróa mætti vinnslu og pökkun á fiski hjá Vísi þannig að enn betur væri mætt þörfum neytenda fyrir vandaðar og hentugar pakkningar, á sama tíma og fullt tillit væri tekið til bæði kostnaðar, sjálfbærni og umhverfisáhrifa. Það er afskaplega krefjandi að setja fram nýjar og gagnlegar hugmyndir, þar sem tekið er tillit til allra mögulega áhrifa þeirra. Liðin leystu þetta öll mjög vel og því var það alls ekki auðvelt fyrir dómnefnd að velja sigurvegara. En dómnefndin leysti sitt hlutverk vel og fagmannlega, og skilaði á endanum samhljóða niðurstöðu.“
Mest lesið Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf Nýr framkvæmdastjóri á Oche Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr framkvæmdastjóri á Oche Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Sjá meira