Viðskipti innlent

Facebook byggir gagnaver í Óðinsvéum

Haraldur Guðmundsson skrifar
MArk Zuckerberg, stofnandi Facebook
MArk Zuckerberg, stofnandi Facebook
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, tilkynnti í morgun um áform fyrirtækisins um að byggja áttunda gagnaver þess í Óðinsvéum í Danmörku. Gagnaverið verður það þriðja í röðinni hjá Facebook sem verður staðsett í Evrópu og alfarið knúið með endurnýjanlegri orku.

Eins og með önnur gagnaver fyrirtækisins er því ætlað að tryggja að samfélagsmiðillinn vinsæli gangi hnökralaust og að stjórnendur geti innleitt nýjar uppfærslur. Zuckerberg greindi frá áformunum í Danmörku á Facebook-síðu sinni og er viðeigandi að nefna að færsla hans hefur nú fengið yfir 160 þúsund like.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×