Viðskipti innlent

Rúmlega tíu þúsund ný lén á síðasta ári

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Alls fjölgaði .is-lénum um 8.2% á árinu 2016
Alls fjölgaði .is-lénum um 8.2% á árinu 2016 Vísir
10.324 ný lén voru skráð undir .is-svæðinu (e. .is-Zone) á nýliðnu ári og er 2016 annað árið í röð sem nýskráningar eru fleiri en 10.000 innan ársins.

Í tilkynningu frá ISNIC kemur fram að af rúmlega 30.000 viðskiptamönnum félagsins eru um 8.100 búsettir utan Íslands, flestir í USA (9%) næstflestir í Þýskalandi (3%) um 2% búa í Noregi og álíka margir á Bretlandseyjum.

Um 54% innlendra rétthafa eru skráðir í Reykjavík, 10% í Kópavogi, 7% í Hafnarfirði og 4% á Akureyri og í Garðabæ. ISNIC hefur lagt nokkra áherslu á sölu til erlendra aðila undanfarin ár þar sem dregir hefur smátt og smátt úr innlendum vexti af eðlilegum ástæðum.

Alls fjölgaði .is-lénum um 8.2% á árinu 2016, sem er samdráttur um eitt prósentustig frá árinu 2015. Heildarfjöldi virkra .is-léna var orðinn 60.000 í nóvember 2016.

„Markaðshlutdeild ISNIC innanlands er um 39.7% skv. talningum Centr.org í okt. 2016. Þá eru talin lén allra höfuðléna með heimilisfang skráð á Íslandi. Í dag, 30. janúar, eru 60.862 virk .is lén skráð og um 73% þeirra eru með heimilisfang á Íslandi, eða um 44.429 lén, sem þýðir (m.v. 39% markaðshlutdeild .is móti öllum öðrum höfuðlénum) að tæplega 114.000 lén eru með skráð heimilisfang á Íslandi um þessar mundir,“ segir í tilkynningunni.

Nánar má fræðast um málið á vef ISNIC. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×