Enski boltinn

Birkir söng eins og Sólstrandargæi fyrir nýju liðsfélagana | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birkir Bjarnason
Birkir Bjarnason Vísir/Samsett
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason spilar væntanlega sinn fyrsta leik með Aston Villa í ensku b-deildinni annað kvöld en eins og aðrir nýliðar í boltanum þurfti kappinn að klára nýliðavígsluna fyrst.

Birkir söng fyrir liðsfélaga sína í dag og myndband með söngnum er nú komið á netið.

Birkir ákvað að velja lagið „Rangur maður“ með Sólstrandargæjunum og söng hann á íslensku fyrir leikmenn Aston Villa liðsins.

Birkir kann greinilega betur við sig inn á knattspyrnuvellinum heldur en í hlutverki söngvarans og það er ekki laust við að maður vorkenni honum aðeins upp á stólnum.

Það hjálpar nú ekki að „selja“ sönginn að hann kann ekki textann og þarf að lesa hann úr símanum sínum.

Nú er bara að vona að Birkir Bjarnason sé ekki „rangur maður, á röngum tíma“ hjá Aston Villa heldur réttur maður á réttum stað.

Fyrsti leikur hans verður á móti Brentford á útivelli á morgun en hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og hefst útsendingin klukkan 19.40.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið með söngnum sem og textann með laginu fyrir forvitna.



„Rangur maður“

Flytjandi: Sólstrandargæjarnir

Lag: Jónas

Texti: Jónas

Af hverju get ég ekki,

lifað eðlilegu lífi?

Af hverju get ég ekki,

lifað bisnesslífi,

keypt mér hús, bíl og íbúð.

Af hverju get ég ekki,

gengið menntaveginn

þangað til að ég æli.

Af hverju get ég ekki,

gert neitt af viti,

af hverju fæddist ég lúser jééé.

Ég er rangur maður

á röngum tíma

í vitlausu húsi.

Ég er rangur maður

á röngum tíma

í vitlausu húsi.

Af hverju er lífið svona ömurlegt,

ætli það sé skárra í Simbabwe.

Af hverju var ég fullur á virkum degi,

af hverju mætti ég ekki í tíma.

Af hverju get ég ekki,

byrjað í íþróttum

og hlaupið um eins og asni.

Af hverju get ég ekki,

verið jafn hamingjusamur

og Sigga og Grétar í Stjórninni jééé.

Ég er rangur maður

á röngum tíma

í vitlausu húsi.

Ég er rangur maður

á röngum tíma

í vitlausu húsi.

Ég er rangur maður

á röngum tíma

í vitlausu húsi.

Ég er rangur maður

á röngum tíma

í vitlausu húsi jééé




Fleiri fréttir

Sjá meira


×