Enski boltinn

AC Milan vill fá Wilshere

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Wilshere í leik með Arsenal.
Wilshere í leik með Arsenal. vísir/getty
Enski miðjumaðurinn Jack Wilshere gæti verið á leið í ítalska boltann en AC Milan hefur sýnt honum mikinn áhuga.

Milan hafð áhuga á að fá hann í sínar raðir síðasta sumar en þá varð ekkert af því. Hann var frekar lánaður til Bournemouth.

Wilshere á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal næsta sumar og félagið hefur ekki sýnt mikinn áhuga á að gera við hann nýjan samning. Hann gæti því verið til sölu.

Klárlega munu nokkur félög bera víurnar í meiðslapésann og eins og staðan er virðist Milan vera einna spenntast fyrir leikmanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×