Fjárfestir frá Sviss kaupir hlut í Omnom Chocolate Haraldur Guðmundsson skrifar 8. febrúar 2017 07:30 Súkkulaði Omnom er nú fáanlegt í 17 löndum. Vísir/Valli
Svissneska fjárfestingafélagið Quadia, sem hefur aðsetur í Genf, hefur keypt tólf prósenta hlut, og samið um kauprétt á 18 prósentum til viðbótar, í íslenska súkkulaðiframleiðandanum Omnom Chocolate. Ef Quadia nýtir sér kaupréttinn verður félagið annar stærsti hluthafi Omnom en stofnandi svissneska félagsins, Eric Christian Archembau, hefur þegar tekið sæti í þriggja manna stjórn íslenska fyrirtækisins. Þetta staðfestir Óskar Þórðarson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Omnom Chocolate, í samtali við Markaðinn og segir kaupverðið trúnaðarmál. Quadia rekur skrifstofu í London og sérhæfir sig að sögn Óskars í fjárfestingum í sjálfbærri matvælaframleiðslu og umhverfisvænni orku. „Þetta mun hjálpa félaginu að ná sínum markmiðum á innlendum og erlendum mörkuðum. Quadia mun hjálpa okkur mikið í öflun hrávöru til framleiðslunnar. Svo eru gríðarlegar tengingar, þegar við förum að þurfa þess, varðandi dreifingu og sölu. Þeir höfðu trú á okkar sýn og vörumerkinu. Omnom er í miklum vexti og með Quadia erum við að fá gríðarlega reynslu frá fjárfestingarhópi, sem sérhæfir sig í að fjárfesta og vinna með félögum sem hafa umhverfisvernd, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi,“ segir Óskar. Omnom var stofnað árið 2013 og opnaði verksmiðju og verslun úti á Granda í júlí í fyrra. Óskar og Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmeistari og stjórnarformaður Omnom, mynda hluthafahóp félagsins ásamt Quadia. Súkkulaði þess er að sögn Óskars selt í yfir 500 verslunum í 17 löndum. Samkvæmt skráningu Omnom hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra (RSK) var félagaformi þess breytt úr einkahlutafélagi í hlutafélag á sama tíma og Eric Christian varð stjórnarmaður.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eitraður starfsmaður og góð ráð Atvinnulíf „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira