Viðskipti innlent

Magnús Óli kjörinn formaður FA

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Magnús Óli Ólafsson, nýr formaður Félags atvinnurekenda.
Magnús Óli Ólafsson, nýr formaður Félags atvinnurekenda.
Magnús Óli Ólafsson, forstjóri heildsölunnar Innness, var kjörinn formaður Félags atvinnurekenda á aðalfundi félagsins í gær.

Hann tekur við formennsku af Birgi S. Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Íslensku umboðssölunnar, sem verið hefur formaður félagsins undanfarin fjögur ár. Magnús Óli hefur setið í stjórn FA í þrjú ár og undanfarið ár verið varaformaður félagsins.

Birgir var kjörinn til áframhaldandi setu í stjórn til eins árs. Þá var Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi, kjörin í stjórn til tveggja ára. Linda sat áður í stjórn FA á árunum 2009-2010, þá fyrir A. Karlsson og Besta þar sem hún var forstjóri. Bjarni Ákason, einn eigenda Epli.is og Skakkaturns, gaf kost á sér til endurkjörs til tveggja ára.

Auk þessara fjögurra sitja í sex manna stjórn félagsins þau Anna Kristín Kristjánsdóttir, eigandi og stjórnarmaður í Hvíta Húsinu, og Hannes Jón Helgason, framkvæmdastjóri Reykjafells, en þau voru kjörin til tveggja ára á aðalfundi 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×