Klaufaleg slagsmál æfð í hringnum Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 3. febrúar 2017 11:00 Gói hitti Gunnar Nelson og fékk hann til aðstoða sig við bardagaatriði. Mynd/Jón
Það gekk glimrandi vel með Gunnari. Ég var mjög stressaður á leiðinni í Mjölni fyrst þegar ég hitti hann. Hugsaði hvað ertu að pæla? Fara að slást við Gunnar Nelson. En hann er náttúrulega svo mikið gæðablóð. Mikill fagmaður og það var mjög lærdómsríkt að vera með honum í hringnum. Hann er svo yfirvegaður og lætur allt líta út fyrir að vera svo auðvelt. Ekki það að það hefur örugglega verið mjög auðvelt fyrir hann að standa á móti mér,“ segir leikarinn Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói eins og flest allir þekkja hann, en hann fékk sjálfan Gunnar Nelson til þess að þjálfa sig upp í bardagaatriði í leikritinu Óþelló sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Spurður út í hvernig bardagaatriðið er í sýningunni segir Gói það vera ekta klaufaleg götuslagsmál. „Til að leika klaufaleg slagsmál þá þarf maður að vera vel æfður til að koma í veg fyrir að einhver slasist. Það er náttúrulega einn bardagasnillingur hér á landi og það er Gunnar Nelson,“ segir Gói og bætir við að Gunnar hafi verið meira en til í að aðstoða sig við atriðið og gefa sér góða punkta.Gói í bardagaatriðinu í sýningunni Óþelló. Mynd/EddiÁður en Gói fór í þjálfun til Gunnars, varð hann móður og náði varla að segja fram textann sinn. „Ég fann svo út úr því að í slagsmálunum gleymdi ég að anda. Sem er frekar bagalegt. Þannig að ég kom varla upp orði. Gunnar hjálpaði mér að muna eftir því að anda. Þetta hljómar náttúrulega fáránlega. En það er merkilegt hvað eðlilegustu hlutir eins og að anda geta vafist fyrir manni þegar maður er að gera eitthvað nýtt,“ segir Gói.Væri til í að æfa meira með Gunnari „Ég væri sko alveg til í það. En ég held að það sé langt í að ég fari að keppa í þessu. Held ég haldi mig bara við leikinn.“ Eftir nokkrar æfingar með í Mjölni fann Gói mikinn mun á bardagasenunni í sýningunni. „Það er svo skemmtilegt að finna muninn á senunni eftir að hafa farið yfir þessi grunnatriði með Gunnari. Þá kemur bara miklu meira öryggi í þetta allt saman. Það er bara ekkert mál að leika senuna núna. Nú hugsa ég líka, var ég í alvöru móður eftir þessa senu? Það er bara svo mikið atriði að vita hvað maður er að gera. Það skiptir gríðarlega miklu máli,“ segir Gói. Hér að neðan má sjá myndband af þeim félögunum í hringnum.
Mest lesið Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Menning Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Matur Frumsýning á Vísi: Bannað að hlæja í boði sem er bannað börnum Bíó og sjónvarp Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Lífið Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Lífið „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Lífið 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ Lífið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ Lífið Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti Lífið Uppgefin á stressinu um miðnætti Lífið Fleiri fréttir Uppgefin á stressinu um miðnætti Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Myndaveisla: Skvísur landsins létu stressið líða úr sér Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Big sexy og Jói Fel tókust á í bjórþambi Heilsuráð Önnu Eiríks fyrir haustið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ „Alla dreymir um að eiga geit“ Hafi liðið sem gísl í Argentínu Símon veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta Valdi Hugh Jackman fram yfir eiginmanninn Sunneva viðstödd fæðingu sonar Jóhönnu Skálað fyrir skarti í Silfursmára Tarsan-leikari látinn Átján ára og ólétt en lét það ekki stoppa sig Óneitanlega óhugnanlegt að horfast í augu við ljón Sýnir örin í fyrsta sinn Laufey Lín í bíó Kitlar að skella sér í stjórnmálin Djúpir litatónar og sjarmi við Laugardalinn Stamaði svo mikið að hann varð að fara í talþjálfun í fimm ár Hrakfallasaga Sigga mæjó í Liverpool Arnhildur hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Að prófa sig áfram í opnu sambandi Smart og hlýlegt fjölskylduhús Michael Newman látinn Tveir urðu að sjö: „Ég veit ekki neitt hvað ég að gera“ Sjá meira