Sigurlíkur Chelsea hækkuðu mikið eftir úrslit vikunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2017 16:30 Diego Costa og félagar í Chelsea eru í frábærum málum. Vísir/Getty
Þriðjudagskvöldið hafði mikil áhrif á tölfræðispá FiveThirtyEight um hvaða lið verður enskur meistari í vor og það er ekki oft sem lið hækka sigurlíkur sínar svona mikið með því aðeins að gera jafntefli. Chelsea náði „bara“ jafntefli á móti Liverpool á Anfield en þar sem öll liðin í næstu sætum töpuðu einnig stigum og Chelsea jók forskot sitt um eitt stig þá eru nú 77 prósent líkur á því að Chelsea verði enskur meistari. Fyrir umferðina í vikunni voru 68 prósent líkur á titil hjá Chelsea og sigurlíkur Antonio Conte og lærisveina hans hækkuðu um níu prósent. Arsenal tapaði á heimavelli á móti Watford og sigurlíkur liðsins fóru úr tólf prósentum niður í fimm prósent. Liverpool á nú fimm prósent möguleika á meistaratitlinum en líkurnar voru sjö prósent fyrir leikinn á móti Chelsea. Slakt gengi Liverpool í janúar hefur þýtt það að sigurlíkur Jürgen Klopp og lærisveina hans hafa hrunið um tugi prósenta í mánuðinum. Tottenham, sem gerði bara markalaust jafntefli við Sunderland í fyrrakvöld, á nú næstmesta möguleika á því að vinna enska meistaratitilinn í vor. Sigurlíkur Spurs eru núna sjö prósent en voru níu prósent fyrir leikina í þessari viku. Hér fyrir neðan má sjá ESPN fara yfir sigurlíkurnar eftir að hafa fengið upplýsingar frá tölfræðisíðunni FiveThirtyEight.Here's how Tuesday's results affected the title race (via @FiveThirtyEight). pic.twitter.com/SzRQnKAqqL— ESPN FC (@ESPNFC) February 1, 2017
Enski boltinn Mest lesið Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Fótbolti Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 1. umferðar Körfubolti „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ Fótbolti „Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“ Fótbolti „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ Fótbolti Sjáðu vandræðalegt vítaklúður Viðars Íslenski boltinn Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 2-2 | Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víking Íslenski boltinn Uppgjörið: HK - Fylkir 2-2 | Brynjar Snær felldi Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Sjá meira