Keyptu sér bíl fyrir afganginn af kaupverðinu Snærós Sindradóttir skrifar 18. febrúar 2017 07:00 Kolbrún Soffía Arnfinnsdóttir og Jóhann Heiðar Árnason eru fædd og uppalin á höfuðborgarsvæðinu en flytja innan skamms til Þorlákshafnar. vísir/eyþór
Jóhann Heiðar Árnason og Kolbrún Soffía Arnfinnsdóttir bíða nú eftir að fá afhenta íbúð í Þorlákshöfn. Þau eru bæði fædd og uppalin í Reykjavík og starfa í Reykjavík í dag, hann á Þjóðarbókhlöðunni og hún í Borgarholtsskóla. „Þegar við fengum lánshæfismat þá sáum við fram á að hafa ekki efni á íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Þær íbúðir sem við höfðum efni á voru óíbúðarhæfar. Þær eru bæði lekar og myglaðar og hreint út sagt ógeðslegar,“ segir Jóhann Heiðar. Þeim leist vel á fyrstu íbúðina sem þau skoðuðu utan höfuðborgarsvæðisins, þriggja herbergja íbúð í Þorlákshöfn. „Við fengum hana á 12,7 milljónir. Hún var miklu flottari en íbúðir sem voru á svona þrjátíu milljónir hér þannig að þetta var engin spurning. Við bara skelltum okkur á þetta.“ Jóhann segir að vegna þess hve íbúðin var ódýr hafi þau haft efni á að kaupa sér bíl líka. „Þegar ég tek strætó úr Breiðholtinu þarf ég að vakna um hálf sjö til að vera mættur klukkan átta. Ég býst ekki við því að vakna neitt fyrr þegar ég keyri frá Þorlákshöfn. En auðvitað vill maður eiga heima hér, ég ólst upp hér og átti alltaf heima hér. Maður verður bara að vera hreinskilinn við sjálfan sig þegar maður skoðar dæmið og sér að það gengur bara ekki upp,“ segir Jóhann og bendir á að erlendis tíðkist víða að fólk búi í nærliggjandi bæjarfélögum en vinni í borginni. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Viðskipti innlent Úlfur Þór til Firma lögmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira