Viðskipti innlent

Lovísa Anna sviðsstjóri fjármálaráðgjafar Deloitte

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir.
Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir.
Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri fjármálaráðgjafar Deloitte.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Lovísa hafi „víðtæka reynslu á sviði fjármálaráðgjafar og hefur stýrt fjölbreyttum verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum á íslenskum markaði, meðal annars á sviði áreiðanleikakannana, kaup- og söluráðgjafar, verðmatsþjónustu og líkanasmíði.

Lovísa hefur jafnframt unnið að alþjóðlegum ráðgjafarverkefnum, fyrir íslenska og erlenda viðskiptavini, en hún starfaði um tíma á skrifstofu Deloitte í Kaupmannahöfn.“

Hún er með M.Sc.-gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskóla Íslands auk þess að vera með M.Acc.-gráðu í reikningsskilum og endurskoðun og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá sama skóla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×