Hálfbróðir Kim Jong-un sagður hafa verið myrtur í Malasíu atli ísleifsson skrifar 14. febrúar 2017 12:54 Kim Jong Nam var handtekinn á japönskum fjölvelli árið 2001 með falsað vegabréf. Vísir/AFP
Kim Jong Nam, eldri hálfbróðir Kim-Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, er sagður hafa verið myrtur í Malasíu. Fjölmiðlar segja sumir að norður-kóreskir leyniþjónustumenn hafi eitrað fyrir honum. Suður-kóreski fjölmiðillinn Yonhap hefur eftir heimildarmönnum sínum að morðið hafi átt sér stað í gærmorgun. Lögregla í Malasíu greinir frá því að óþekktur maður hafi dáið á leið frá flugvellinum í Kuala Lumpur á sjúkrahús. Ekki hefur verið greint opinberlega frá því hvern um ræðir, en starfsmaður bráðadeildar sjúkrahúsins Putrajaya segir að Norður-Kóreumaður að nafni Kim, sem fæddur var 1970, hafi látið lífið. Suðurkóreski fjölmiðillinn Chosun segir frá því að eitrað hafi verið fyrir hinum 45 ára hálfbróður leiðtogans á flugvellinum í Kuala Lumpur af tveimur konum, sem taldar eru útsendarar Norður-Kóreustjórnar. Eiga þær að hafa notast við eiturnálar og svo að hafa flúið af vettvangi í leigubíl. Kim Jong-un og hálfbróðirinn Kim Jong Nam eiga ekki að hafa verið nánir, en þeir eru báðir synir fyrrverandi leiðtogans Kim Jong-il. Kim Jong Nam hefur stærstan hluta ævi sinnar dvalið annars staðar en í Norður-Kóreu og hefur áður gagnrýnt það tangarhald sem fjölskylda hans hefur á landinu. Kim Jong Nam á að hafa verið náinn Jang Song Thaek, sem var kvæntur systur Kim Jong-il, og var tekinn af lífi árið 2013, eftir skipun frá Kim Jong-un. Árið 2001 var Kim Jong Nam handtekinn með falsað vegabréf á japönskum flugvelli. Hann sagðist þá vilja heimsækja Disneyland í japönsku höfuðborginni Tokýó. Hann var vanur því að heimsækja Hong Kong, Macau og meginland Kína.
Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Val Kilmer er látinn Lífið Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira