Meistararnir í fallsæti eftir sigur Crystal Palace | Úrslit dagsins Kristinn Páll Teitsson skrifar 25. febrúar 2017 17:00 Leikmenn Palace fagna sigurmarki bakvarðarins Van Aanholt. vísir/getty
Crystal Palace undir stjórn Sam Allardyce vann lífsnauðsynlegan 1-0 sigur á Middlesbrough á heimavelli í dag en með sigrinum lyfti Crystal Palace sér upp fyrir Leicester og upp úr fallsæti í bili. Hollenski bakvörðurinn Patrick Van Aanholt sem gekk til liðs við Crystal Palace í félagsskiptaglugganum skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik eftir góðan undirbúning Yohan Cabaye. Reyndist það vera eina mark leiksins en með sigrinum er Crystal Palace komið upp að hlið Middlesbrough með 22 stig en nýliðar Middlesbrough hafa ekki unnið leik í ensku úrvalsdeildinni í rúmlega tvo mánuði. Á Goodison Park unnu heimamenn nokkuð sannfærandi 2-0 sigur gegn gamla stjóranum David Moyes og hans mönnum í Sunderland en það voru Idrassa Guyeye og Romelu Lukaku sem skoruðu mörkin fyrir Everton. Everton hefur nú leikið níu leiki í röð án taps í ensku úrvalsdeildinni og eru strákarnir hans Ronald Koeman hægt og bítandi að fikrast upp töfluna en fjögur stig eru í Manchester United. Á The Hawthorns tókst West Bromwich Albion að kom til baka eftir að hafa lent undir snemma leiks og vinna 2-1 sigur gegn Bournemouth en þetta var sjötta tap Bournemouth í síðustu sjö leikjum. Joshua King kom gestunum frá Bournemouth yfir á 5. mínútu en tvö mörk með tíu mínútna millibili frá Craig Dawson og Gareth McAuley tryggðu Albion-mönnum stigin þrjú. Eftir að hafa fengið ellefu stig af síðustu fimmtán er West Brom komið upp í efri hluta deildarinnar í áttunda sætið. Að lokum skyldu nýliðar Hull og Burnley jöfn á heimavelli Hull City en Michael Keane jafnaði metin fyrir Burnley stuttu eftir að Tom Huddlestone kom Hull yfir af vítapunktinum. Ashley Barnes sá rautt í uppbótartíma í seinni hálfleiks en heimamönnum mistókst að nýta sér það en það þýðir að Hull er áfram í fallsæti að 26. umferðum loknum en Burnley er um miðja deild með 31 stig í 11. sæti.Úrslit dagsins: Chelsea 3-1 Swansea Everton 2-0 Sunderland Crystal Palace 1-0 Middlesbrough West Brom 2-1 Bournemouth Hull City Tigers 1-1 Burnley
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira