Viðskipti innlent

Húsaleigan hækkaði minna en kaupverð

Haraldur Guðmundsson skrifar
esta breyting á leiguverði milli janúar 2016 og 2017 var 25 prósenta hækkun á tveggja herbergja íbúðum á Suðurnesjum.
esta breyting á leiguverði milli janúar 2016 og 2017 var 25 prósenta hækkun á tveggja herbergja íbúðum á Suðurnesjum. Vísir/Vilhelm
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hafði hækkað um 11,5 prósent á tólf mánaða tímabili frá janúar 2016. Á sama tíma hafði söluverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 16,3 prósent. Kaupverð fjölbýlis hafði þá hækkað um tíu prósentum meira en leiguverð frá upphafi ársins 2011.

Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans. Í henni kemur fram að talnaupplýsingar um leiguverð í janúar síðastliðnum séu unnar upp úr rúmlega 430 þinglýstum leigusamningum. Til samanburðar voru samningarnir 470 í janúar 2016.

„Leiguverð fyrir tveggja herbergja íbúðir er nær alls staðar töluvert hærra en á þriggja herbergja íbúðum sem er svo líka allsstaðar hærra en á stærstu íbúðunum. Eina undantekningin á þessu er Akureyri. Sums staðar er þessi munur verulegur, eins og í Kópavogi og austurhluta Reykjavíkur. Munur á leiguverði tveggja og þriggja herbergja íbúða er mestur í Kópavogi, 28 prósent, en er að meðaltali um 13 prósent á öllum svæðum. Munurinn á þriggja herbergja íbúðum og þeim stærri er mestur á Suðurnesjum, 28 prósent, en er að meðaltali 16 prósent. Leiguverðið er hæst fyrir allar stærðir íbúða í vesturhluta Reykjavíkur og lægst utan höfuðborgar-svæðisins, en annars er dreifingin þar á milli nokkuð jöfn,“ segir í Hagsjánni.  

Mesta breyting á leiguverði milli janúar 2016 og 2017 var 25 prósenta hækkun á tveggja herbergja íbúðum á Suðurnesjum og þar á eftir komu tveggja herbergja íbúðir í Kópavogi. Minnstu breytingarnar eru 14 prósent lækkun á minnstu íbúðunum á Akureyri og um tveggja prosenta hækkun á þriggja herbergja íbúðum í austurhluta Reykjavíkur. Vísitala leiguverðs hækkaði um 11,5 prósent á milli þessara tímabila.

„Eins og oft hefur verið undirstrikað í Hagsjám Hagfræðideildar er jafnan um að ræða mikla dreifingu á bak við meðaltöl ýmissa stærða á fasteignamarkaði. Þá eru einnig töluverðar sveiflur á milli mælinga í einstökum mánuðum. Þessar aðstæður eiga ekki síður við um leigumarkaðinn en kaup- og sölumarkaðinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×