Viðskipti innlent

Einkaneysla ekki mælst meiri síðan 2007

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kringlan.
Kringlan. Vísir/Vilhelm
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 7,2 prósent á árinu 2016 og er nú 10 prósent meiri en hún var árið 2008. Einkaneysla jókst um 6,9 prósent, samneysla um 1,5 prósent og fjárfesting jókst um 22,7 prósent.

Árlegur vöxtur einkaneyslu hefur ekki mælst meiri frá árinu 2005 en að árinu 2007 undanskildu hefur einkaneysla ekki mælst meiri að raungildi hér á landi að því er kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Útflutningur jókst um 11,1 prósent á sama tíma og innflutningur jókst um 14,7 prósent og dró utanríkisverslun úr hagvexti þrátt fyrir 158,8 milljarða króna afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári.

Útflutningur þjónustu nam 26,8 prósent af landsframleiðslu á árinu 2016 og er þetta í fyrsta skipti frá því að gerð þjóðhagsreikninga hófst árið 1945 sem tekjur af útfluttri þjónustu mælast hærri en af vöruútflutningi.

Fjárfesting jókst um 22,7 prósent á síðasta ári en árlegur vöxtur fjárfestingar hefur ekki mælst meiri síðan árið 2006. Umtalsverð aukning var í fjárfestingu atvinnuveganna, eða 24,7 prósent og sömuleiðis í íbúðafjárfestingu, eða 33,7 prósent. Á sama tímabili jókst fjárfesting hins opinbera um 2,5 prósent.

Sem hlutfall af landsframleiðslu var samneysla 23,1 prósent á liðnu ári sem er heldur lægra en undanfarin ár. Á árabilinu 2010-2015 var hlutfallið 24,3 prósent að meðaltali en frá árinu 1996 hefur hlutfall samneyslu af landsframleiðslu verið 23,3 prósent að meðaltali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×