Margir til liðs við góðan málstað Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. mars 2017 09:30 Anna Jónsdóttir, Axel Kristinsson (einn prestanna þriggja), Sigurður Bragason, Kolbeinn Ketilsson, Krisztina Kalló Szklenár organisti og Viðar Gunnarsson. Vísir/Eyþór Árnason
Stórtónleikar verða í Langholtskirkju á laugardaginn klukkan 16, þeir eru til styrktar langveikum börnum. Trúbador, einsöngvarar, hljóðfæraleikarar og fjöldi kóra munu flytja þar fallega efnisskrá. Sigurður Bragason barítón er listrænn stjórnandi tónleikanna. „Það er verið að afla fjár fyrir langveik börn og ífurlegur fjöldi fólks tekur þátt og gefur sína vinnu,“ segir hann. Sigurður er líka höfundur viðamikils tónverks sem verður frumflutt undir lokin og segir það samið fyrir þessa tónleika, þó í því séu líka eldri stef. „Verkið nefnist Passía Krists og er við ljóð Valdimars Lárussonar. Flytjendur eru 220 manna kór og hinum megin í kirkjunni er bergmálskór. Karlatríó er í hlutverki prestanna og barnakór úr Háteigsskóla tekur þátt, auk píanó- og orgelleikara. Einsöngvarar eru Anna Jónsdóttir, Kolbeinn Ketilsson, Kristín Sigtryggsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir og Viðar Gunnarsson. Svo koma Sólrún Bragadóttir, Diddú, Svavar Knútur og fjölmargir kórar með sitt framlag, þar fyrir utan.“ Þetta er í sjötta skipti sem Sigurður efnir til styrktartónleika sem hann samdi líka tónverk fyrir, þó að passían sé það stærsta. „Kveikjan að fyrstu tónleikunum var sú að einn af félögum í kór sem ég stjórnaði stórslasaðist þegar hann féll niður af húsi sem hann var að vinna við og varð eftir það mikið fatlaður. Þá voru haldnir styrktartónleikar fyrir fatlaða – það var upphafið,“ rifjar Sigurður upp. Hann segir ótrúlega vel hafa gengið að fá fólk til að koma fram. „Þó er meira en að segja það að æfa upp stór verk – eins og flutt er í lokin – verk sem fólk hefur aldrei heyrt eða séð áður.“ Hann bendir á að ekkert mundi þó aflast ef áheyrendur væru ekki tilbúnir að mæta og borga sig inn. „Það er bæði dýrmætt og gaman að fá marga til liðs við málstaðinn,“ segir hann. „Þeim fylgir mikill kraftur.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 9. mars 2017
Menning Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Maggie Smith er látin Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Sjá meira