Viðskipti innlent

Ingibjörg hætt sem stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir. Vísir
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs, hefur sagt af sér formennsku í stjórn sjóðsins en hún er að taka við nýju starfi erlendis. Núverandi varaformaður stjórnar Íbúðalánasjóðs, Sigurbjörn Ingimundarson, hefur tekið við formennsku í stjórninni tímabundið þar til ráðherra hefur skipað á ný í stjórnina.

„Ég vil þakka bæði núverandi og fyrrverandi húsnæðismálaráðherrum, stjórnarmönnum, forstjóra, nefndarmönnum og hinu frábæra starfsfólki sjóðsins fyrir ánægjulegt samstarf síðustu fjögur ár. Við höfum sameiginlega náð að snúa rekstrinum við og það er mjög ánægjulegt að hafa átt þátt í því mikla umbótaferli sem sjóðurinn hefur gengið í gegnum. Ég óska nýjum stjórnarformanni og Íbúðalánasjóði alls hins besta, er haft eftir Ingibjörgu í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×