Verðlaunasöngvarar á hádegistónleikum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. mars 2017 10:15 Gunnar, Antonia og Ari í tröppum Hafnarborgar. Mynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir „
Við ætlum að syngja ítalskar aríur úr hinum ýmsu óperum eftir Verdi, Donizetti og Puccini,“ segir Gunnar Björn Jónsson, annar tveggja tenóra sem láta ljós sitt skína á hádegistónleikum Antoniu Hevesi í Hafnarborg í Hafnarfirði í dag klukkan 12. „Já, við sendum Antoniu óskalista og hún valdi lögin af honum,“ útskýrir hinn tenórinn, Ari Ólafsson. Báðir hlutu þeir verðlaunasæti í söngkeppninni Vox Domini sem haldin var fyrir klassíska söngvara og nemendur í slíkum söng, í janúar síðastliðnum af félagi íslenskra söngkennara. Verðlaunin voru meðal annars þau að koma fram á þessum tónleikum. Ari er nemandi Bergþórs Pálssonar í Söngskólanum í Reykjavík og Gunnar Björn er nýlega kominn frá Ítalíu úr tveggja ára námi í söng. Mörgum er í fersku minni þegar Ari kom fram með Sissel Kyrkjebo á tónleikum hennar í Hörpu á síðasta ári. Það var reyndar í annað sinn því fyrst söng hann með henni á Frostrósatónleikum 2011. Ari lék Ólíver í samnefndum söngleik í Þjóðleikhúsinu árið 2009-2010 og ári síðar sjö hlutverk í söngleiknum Galdrakarlinn í Oz í Borgarleikhúsinu. Hann kveðst orðinn mjög spenntur fyrir tónleikunum í dag. „Já, það er heiður að taka þátt í þessari rótgrónu hádegistónleikaröð sem hún Antonia er með í Hafnarborg,“ segir Gunnar Björn sem er Akureyringur og hefur haldið nokkra tónleika í Hofi, við ýmis tækifæri, meðal annars á 150 ára afmæli Akureyrar. Hann hefur verið með í ýmsum uppfærslum á vegum Söngskóla Sigurðar Demetz, þar sem hann var nemandi Kristjáns Jóhannssonar. Gunnar Björn hefur einnig tekið þátt í tveimur sönggjörningum með listamanninum Ragnari Kjartanssyni í New York og í Zürich. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Tilfinningaríkir tenórar. Þeir hefjast kl. 12, standa yfir í um hálfa klukkustund og eru öllum opnir meðan húsrúm leyfir. Húsið verður opnað kl. 11.30. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. mars 2017.
Menning Mest lesið „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Maggie Smith er látin Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Þriðja barnið á leiðinni Lífið Fleiri fréttir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Sjá meira