Viðskipti innlent

Helga Lára til Attentus

Atli Ísleifsson skrifar
Helga Lára Haarde.
Helga Lára Haarde. attentus
Helga Lára Haarde hefur verið ráðin í starf sérfræðings hjá Attentus - mannauði og ráðgjöf.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að hún hafi víðtæka reynslu af megindlegum og eigindlegum viðhorfsrannsóknum og muni koma að frekari þróun þessara afurða hjá Attentus.

„Helga Lára lauk B.Sc.-gráðu í sálfræði og M.S.- gráðu í félags-og vinnusálfræði frá Háskóla Íslands.  Hún kemur til Attentus frá Maskínu ehf. en jafnframt hefur Helga Lára verið aðstoðarkennari við HÍ og m.a. kennt þar aðferðarfræði rannsókna,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×