Viðskipti innlent

Helgi endurkjörinn formaður Samorku

Haraldur Guðmundsson skrifar
Helgi Jó­hann­es­son, for­stjóri Norður­orku, var í dag endurkjör­inn formaður Samorku til tveggja ára á aðal­fundi sam­tak­anna.

Samkvæmt tilkynningu Samorku voru þau Ásgeir Margeirsson, for­stjóri HS Orku og Guðrún Erla Jónsdóttir, stefnustjóri Orkuveitu Reykjavíkur, þá endurkjörin í stjórn samtakanna. Þau Guðmund­ur Ingi Ásmunds­son og Jó­hanna B. Han­sen, bæj­ar­verk­fræðing­ur Mos­fells­bæj­ar, sitja einnig áfram í stjórninni. Þá verður Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, áfram fulltrúi fyrirtækisins í stjórn Samorku og fulltrúi Veitna verður Inga Dóra Hrólfs­dótt­ir framkvæmdastjóri.

Ragna Árnadóttir, Landsvirkjun, Jón Tryggvi Guðmundsson, Selfossveitum og Elías Jónatansson, Orkubúi Vestfjarða, voru kjörnir nýir varamenn í stjórn Samorku til tveggja ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×