Viðskipti innlent

Brandenburg með flestar tilnefningar til Lúðursins

Haraldur Guðmundsson skrifar
Auglýsingastofan Brandenburg hlaut flestar tilnefningar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna, Lúðursins, þriðja árið í röð eða alls sextán. Pipar/TBWA hlaut tíu tilnefningar, ENNEMM átta og Íslenska auglýsingastofan sjö. Önnur fyrirtæki fengu fimm tilnefningar eða færri.

Verðlaunin verða afhent í 31. sinn á ÍMARK-deginum föstudaginn 10. mars klukkan 17.00 í Eldborgarsal Hörpu.

„Við erum hæstánægð með tilnefningarnar. Bæði fyrir okkur sjálf og en ekki síst fyrir hönd viðskiptavina okkar. Það að við séum með flestar tilnefningar ár eftir ár segir okkur að við séum að gera góða hluti, eitthvað sem við sjálf gleymum stundum í þessum daglega hamagangi hér á stofunni,“ segir Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Brandenburg, í tilkynningu til fjölmiðla. Brandenburg fagnar fimm ára afmæli sínu á ÍMARK–deginum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×