Mourinho vildi ekki tala um rauða spjaldið eftir leikinn eða svona næstum því Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2017 22:21
Manchester United er úr leik í enska bikarnum eftir tap á móti Chelsea á Stamford Bridge í kvöld en liðið lék manni færri í 55 mínútur í 1-0 tapi á móti toppliði ensku úrvalsdeildarinnar. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, hló af ákvörðun Michael Oliver þegar hann rak Ander Herrera af velli á 35. mínútu fyrir sitt annað gula spjald. Portúgalinn vildi ekki tala um rauða spjaldið eftir leikinn en sagði samt ýmislegt eins og hans er von og vísa. „Ég ætla ekki að tala um rauða spjaldið. Ég vil bara segja að ég er virkilega stoltur af leikmönnum og stuðningsmönnum Manchester United í kvöld,“ sagði Jose Mourinho við BBC eftir leikinn. „Það er mikilvægur leikur framundan á fimmtudaginn og nú vil ég fá að hvíla mig aðeins og undirbúa mig síðan eins vel og ég get,“ sagði Mourinho og vísaði þar í Evrópudeildarleik í vikunni. „Það geta allir leikgreint þennan leik í bak og fyrir en hann mun alltaf skiptast í leikinn fyrir og eftir rauða spjaldið. Við getum því borið þessi gulu spjöld saman við þau brot í leiknum sem kölluðu ekki á gul spjöld,“ sagði Mourinho. „Michael Oliver er dómari sem hefur frábæra möguleika til að ná langt í framtíðinni en í fjórum leikjum hjá okkur hefur hann dæmt á okkur þrjár vítaspyrnur og gefið rautt spjald. Ég get ekki breytt því,“ sagði Mourinho en hvað sagði hann við Antonio Conte eftir leikinn. „Ég tók í höndina á honum og óskaði honum til hamingju,“ sagði Jose Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira