Lífið

Kvöldfréttir Stöðvar 2: „Erfitt að trúa öðru en að um hönnunarstuld sé að ræða“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Samfestingurinn sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir klæddist á laugardaginn í Söngvakeppni sjónvarpsins hefur valdið nokkrum usla þar sem hann þykir ansi líkur samfestingi úr vorlínu tískuhúss Balmain.

Íslenskir hönnuðir hafa sagt hönnun samfestingsins beinlínis stolið.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld ræðum við við fagfólk innan tískugeirans um hönnunarstuld. Við hittum meðal annars Álfrúnu Pálsdóttur, ritstjóra tískutímaritsins Glamour, Lindu Björg Árnadóttur, hönnuð og lektor við Listaháskólann og Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar Íslands. 

Kvöldfréttir hefjast á slaginu 18.30, að vanda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.