Viðskipti innlent

Herferð Íslandsbanka vann Áruna

Haraldur Guðmundsson skrifar
Starfsfólk Íslandsbanka og ENNEMM tók við verðlaununum nú fyrr í dag.
Starfsfólk Íslandsbanka og ENNEMM tók við verðlaununum nú fyrr í dag.
Auglýsingaherferðin Mín áskorun hlaut verðlaun í flokknum ÁRA á ÍMARK deginum í dag. Verðlaunin eru veitt fyrir árangursríkustu herferðina. Auglýsandi er Íslandsbanki og sá ENNEMM auglýsingastofa um verkefnið.

ÍMARK dagurinn fer fram í dag í Hörpu og verðlaunaafhending Lúðursins í öllum öðrum flokkum fer fram í kvöld kl. 18.00 í Eldborgarsal Hörpu.

Herferðin Mín áskorun hófst á „auglýsingu” um minningartónleika til heiðurs Valdimari. Sú auglýsing var upphafið á herferðinni þar sem Valdimar var fylgt í gegnum undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka.

Söngvaranum Valdimar var fylgt í gegnum undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþonið og náði herferðin hámarki þegar streymt var beint frá 10 kílómetra hlaupi hans.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×