Lífið

Gordon Ramsey hræddi líftóruna úr gestum þáttarins með ógeðslegum hrekk

Stefán Árni Pálsson skrifar
Roslegur hrekkur.
Roslegur hrekkur.
Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay hræddi líftóruna úr áhorfendum í sal á dögunum en hann setti á svið mjög svo grófan hrekk.

Ramsey er helst þekktur fyrir matreiðsluþætti sína og þá sérstaklega fyrir Hell's Kitchen og MasterChef.

Atvikið átti sér stað í breska spjallþættinum The Nightly show þegar hann setti á svið sýnikennslu fyrir grínistann Frank Skinner um það hvernig maður ætti að útbúa heilsudrykk eða boost eins og margir þekkja það sem.

Blandarinn virtist ekki virka hjá stjörnukokkinum og setti hann hendurnar ofan í. Eitthvað sem stranglega bannað er að gera.

Á einu augabragði var eins og Ramsey hefði misst putta og blóð út um allt. Stórkostlegur hrekkur sem sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×