Innlent

Tvær líkamsárásir í miðborginni

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla stöðvaði nokkra ökumenn vegna gruns um ölvun við akstur.
Lögregla stöðvaði nokkra ökumenn vegna gruns um ölvun við akstur. Vísir/Eyþór
Tvær líkamsárásir voru tilkynntar í miðborg Reykjavíkur í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir jafnframt afskipti hafi verið höfð af nokkrum unglingum sem eru grunaðir um skemmdarverk á skólabyggingu í austurborginni.

Þá var einn maður handtekinn grunaður um heimilisofbeldi og nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×