Lífið

Shaq, Fallon og Pitbull í hörðustu „lip sync“ keppni sem sést hefur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikalega hörð keppni
Hrikalega hörð keppni
Körfuboltamaðurinn Shaquille O'Neal og spjallþáttastjórnandinn Jimmy Fallon mættust í „lip sync“ keppni í þættinum The Tonight Show í vikunni og fóru þeir báðir einfaldlega á kostum.

Fallon byrjaði keppnina á því að taka lagið Jump Around með House of Pain. Shaq svaraði með My Prerogative með Bobby Brown og dansaði hann um allan sal eins og fagmaður. Það sem gerði atriði körfuboltamannsins stórbrotið var að í miðju lagi kom sjálfur Pitbull fram aðstoðaði þann stóra.

Fallon endaði á því að flytja lag úr kvikmyndinni Beauty and the Beast sem Ariana Grande og John Legend fara svo fallega með. Fallon fór í hlutverk þeirra beggja.

Hér að neðan má sjá þessa hörðu keppni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×