Big Ben gerði gömlu félögum grikk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. apríl 2017 06:30 Benteke er kominn með 14 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur. vísir/getty
Christian Benteke skoraði bæði mörk Crystal Palace þegar liðið vann 1-2 útisigur á Liverpool, hans gamla liði, í gær. Palace hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu og unnið sex af síðustu átta leikjum sínum. Og strákarnir hans Sams Allardyce eru komnir upp í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Ótrúlegur viðsnúningur hjá Palace sem var í tómu rugli undir lok stjórnartíðar Alans Pardew. Benteke var aðeins eitt tímabil í herbúðum Liverpool og þrátt fyrir að hafa ekki náð að sýna sínar bestu hliðar skoraði hann níu mörk í 29 deildarleikjum. Það var ekki nóg til að sannfæra Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, sem seldi hann til Palace á tæpar 30 milljónir punda. Belginn stóri og stæðilegi hefur átt fínt tímabil með Palace og er kominn með 14 mörk í vetur. Benteke hefur alls skorað 65 mörk í 149 leikjum í ensku úrvalsdeildinni sem verður að teljast góð tölfræði, sérstaklega í ljósi þess að hann lék með Aston Villa fyrstu þrjú tímabil sín í deildinni.Stóru málin eftir helgina í enska boltanumStærstu úrslitin Þrátt fyrir að vera manni færri í 65 mínútur vann Hull 2-0 sigur á Watford. Mikilvæg þrjú stig hjá Tígrunum, sérstaklega í ljósi þess að Swansea vann Stoke á sama tíma. Þetta var sjötti deildarsigur Hull undir stjórn Marcos Silva.Hvað kom á óvart? Að Everton tókst ekki að skora gegn West Ham sem er með eina lélegustu vörn deildarinnar. Everton hafði skorað 16 mörk í sex leikjum fyrir leikinn á Lundúnaleikvanginum á laugardaginn en tókst ekki að finna netmöskvana gegn Hömrunum.Mestu vonbrigðin Liverpool hefði farið langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti með sigri á Crystal Palace á heimvelli. Liverpool komst yfir en Christian Benteke, fyrrverandi leikmaður liðsins, skoraði svo tvívegis fyrir Palace og tryggði liðinu sigurinn. Lærisveinar Jürgens Klopp eru nú bara þremur stigum á undan Manchester United sem á tvo leiki til góða á Liverpool.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira