„Það var svakaleg stemning og þetta er greinilega mikill hátíðisdagur fyrir Frakka,“ sagði Þórhildur Þorkelsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, sem var stödd í París um helgina. „Þeir taka þessu mjög alvarlega og eru mjög ástríðufullir,“ segir hún um stemninguna á meðal Frakka.
Um 300 þúsund Frakkar hópuðust saman í Tuileries-garðinum, við Louvre, til að fagna nýkjörnum forseta. „Það var ótrúlegt að fylgjast með þessu,“ segir Þórhildur og bætir við að löggæslan hafi verið gríðarleg.
Þórhildur segist skynja að Frakkar uni niðurstöðunni mjög vel en ákveðinn hópur sé óhress með að hafa ekki getað kosið með hjartanu heldur hafi þeir helst verið að hugsa um að halda Le Pen frá.
„Sérstaklega vinstri mennirnir. Þeim finnst þeir ekki hafa átt neinn frambjóðanda sem þeir gátu kosið. Enda endurspeglast það í því að það var metfjöldi auðra atkvæða og kosningaþátttakan var léleg,“ segir Þórhildur.
Hún segir fána Evrópusambandsins hafa verið áberandi eftir sigur Macrons og augljóst að þeir sem voru samankomnir á torginu litu á niðurstöðuna sem sigur fyrir þá sem vilja áframhaldandi aðild að Evrópusambandinu. Enda hafði Le Pen heitið því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort Frakkar ættu að vera áfram í ESB.

Hann segir niðurstöðuna styrkja Evrópusambandið í sessi en bendir á að Macron hafi ætlað að vinna að breytingum á Evrópusambandinu til að stuðla að breytingum í átt að meira lýðræði. Þessi fyrirheit hans séu ekki beinlínis fagnaðarefni fyrir þá sem fara með völdin í Evrópusambandinu.
Það verði því spennandi að sjá hvernig mál þróast.
„Þessi óánægja innan Evrópusambandsins með skort á lýðræðislegu umboði þeirra sem fara með æðstu stjórn er ekki bara bundin við Frakkland,“ segir Björn.

Björn segir að það verði spennandi að fylgjast með Macron í framhaldinu. „Það verður spennandi að sjá hvern hann velur sem forsætisráðherraefni og hvernig hann myndar ríkisstjórn,“ segir hann. Þá verði spennandi að sjá hvernig þingið verður samsett eftir þingkosningarnar í sumar.
„Ég á ekki von á því að Le Pen fái mikið í þingkosningunum en það er ekki vitað hvað hann fær,“ segir Björn og bendir á að bæði Macron og flokkur hans séu óskrifað blað.
„En hann skýrði auðvitað sín sjónarmið í kosningabaráttunni og var málefnalegur á meðan hún var eiginlega bara dónaleg, ef svo má segja.“
