Asíski draumurinn var á dagskrá Stöðvar 2 síðastliðið föstudagskvöld en eitt atriði vakti sérstaka athygli. Það var þegar Auddi og Steindi þurftu að baða fíla.
Í þáttunum keppa þeir Auðunn Blöndal og Steinþór Hróar Steinþórsson á móti þeim Sverri Þór Sverrissyni og Péturi Jóhanni Sigfússyni líkt og í síðustu þáttaröð.
Asíski draumurinn er framhald af Evrópska draumnum sem og Ameríska draumnum en þeir þættir voru sýndir á Stöð 2 á árunum 2010 og 2012.
Það hafði í raun alltaf verið draumur Steinda að fá að baða fíl. Eftir að hafa gefið fílunum yfir hundrað banana unnu þeir traust þeirra og fengu að fara á bak. Því næst böðuðu þeir fílana og má sjá hvernig til tókst hér að neðan.
Lífið
Asíski draumurinn: Draumur strákanna rættist þegar þeir fengu að baða fíl
Tengdar fréttir
Steindi nýtti sér Call of Duty reynsluna og hitti beint í mark með bazooka
Annar þátturinn af Asíska draumnum var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi og fékk hann heldur betur góðar viðtökur.
Atriðið sem allir eru að tala um: Hin asíska Sigga Kling barði Audda og Steinda í klessu
Fyrsti þátturinn af Asíska draumnum var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi og fór þáttaröðin heldur betur vel af stað.
Pétur Jóhann stórhættulegur með samúræjasverðið og rekinn úr tíma
Þriðji þátturinn af Asíska drauminum var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar keppa þeir Pétur Jóhann Sigfússon og Sverrir Þór Sverrisson á móti Auðunni Blöndal og Steinda Jr.
Auddi og Steindi barðir í köku í Asíska drauminum
Þriðji þátturinn af Asíska drauminum var á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldið. Þar keppa þeir Pétur Jóhann Sigfússon og Sverrir Þór Sverrisson á móti Auðunni Blöndal og Steinda Jr.