Klopp vill fá Fabregas til Liverpool í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2017 10:00 Cesc Fabregas. Vísir/Samsett/Getty
Ensku blöðin eru sammála með Liverpool-slúðrið í morgun en flest þeirra segja að Liverpool sé á höttunum eftir spænska miðjumanninum Cesc Fabregas. Liverpool fær hinsvegar mikla samkeppni frá erkifjendum sínum sem hafa líka sýnt áhuga á þessum gamla Arsenal-manni. Cesc Fabregas er líklegast á sínu síðasta tímabili hjá Chelsea sem ætlar að losa sig við í sumar samkvæmd sömu fréttum. Fabregas hefur aðeins byrjað tíu leiki með Chelsea á þessu tímabili eða síðan að Antonio Conte tók við liðinu. Hann hefur hinsvegar oft átt góðar innkomur af bekknum og á því óumdeildan þátt í meistaratitli Chelsea í ár. Fabregas er með 6 mörk og 10 stoðsendingar í öllum keppnum á leiktíðinnui. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, ætlar að styrkja miðju liðsins í sumar og bæði Cesc Fabregas og Real Madrid maðurinn Isco eru á innkaupalistanum. Klopp fær þó væntanlega samkeppni frá Jose Mourinho um Cesc Fabregas en Manchester United hefur einnig áhuga á þessum reynslumikla miðjumanni. Mourinho keypti einmitt Fabregas til Chelsea fyrir 30 milljónir punda sumarið 2014. Ensku blöðin segja að kaupverðið á Cesc Fabregas verði á bilinu 25 til 30 milljónir punda eða frá 3,4 milljörðum til 4,1 milljarðar íslenskra króna. Fabregas heldur upp á þrítugsafmælið sitt í þessari viku en hann á tvö ár eftir af samningi sínum sem skilar honum 170 þúsund pundum í vikulaun eða 23,4 milljónum íslenskra króna. Klopp vill fá öflugan mann inn á miðjuna fyrir næsta tímabil. Lucas Leiva fer líklega til Galatasaray í sumar og Real Madrid hefur mikinn áhuga á því að kaupa Brasilíumanninn Philippe Coutinho. Þá hefur Jordan Henderson gengið illa að halda sér heilum á þessari leiktíð. Cesc Fabregas spilaði sinn fyrsta leik í ensku deildinni með Arsenal árið 2003 og var hjá Skyttunum allt til ársins 2011 þegar hann fór til Barcelona. Eftir þrjú ár hjá Barcelona kom hann aftur til Englands og hefur því spilað ellefu af fjórtán tímabilum sínum á Englandi. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar forsíður ensku blaðanna þar sem þau slá upp áhuga Liverpool og Manchester United á Cesc Fabregas.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira