Lífið

Eyddi milljónum í starfsmann til að lesa upp línur sínar

Samúel Karl Ólason skrifar
Johnny Depp.
Johnny Depp. Vísir/Getty
Leikarinn Johnny Depp er sagður hafa varið milljónum króna í að hafa starfsmann á launum allan ársins hring til að lesa línur hans upp fyrir hann þegar hann er í tökum. Þannig gæti hann komist hjá því að læra þær. Það eru nýjustu uppljóstranirnar í deilu hans og fyrrverandi umboðsskrifstofu hans. 

13. janúar síðastliðinn stefndi leikarinn fyrirtækinu The Management Group, eða TMG, fyrir að hafa haft af honum tugi milljóna dollara með svikum. Hann sakaði fyrirtækið um að hafa farið illa með fjármuni hans, tekið lán án hans samþykkis og falið þetta allt saman fyrir honum.

Fyrirtækið sagði eyðslusaman lífsstíl Depp vera ástæðu þess að hann væri í fjárhagsvandræðum.

Sjá einnig: Segja fáránlega eyðslusaman lífsstíl ástæðu fjárhagserfiðleika Johnny Depp

Hollywood Reporter komst yfir breytta stefnu TMG gegn Depp, þar sem lögmenn segja Depp hafa hunsað allar viðvaranir og heimtað fjármagn til að viðhalda lífstíl sínum. Þá kemur fram að systir DeppElisa Christie Dembrowski hafi samþykkt eyðslu hans.

Meðal þess sem leikarinn hefur keypt eru 14 íbúðarhúsnæði, 45 eðalbílar, 70 sjaldgæfir gítarar og gífurlegt magn af minjagripum frá Hollywood sem hafi fyllt tólf geymslur.

Enn fremur heldur TMG því fram að Depp hafi ítrekað logið að almenningi og yfirvöldum til að komast undan afleiðingum gjörða sinna. Það sem meira er þá fer fyrirtækið fram á að leikarinn sæti geðrannsókn vegna eyðslu sinnar.

Varðandi starfsmanninn sem les upp línur Depp, er rifjað upp á vef Vulture viðtal við leikkonuna Kirsten Dunst frá árinu 2008. Þar sagði hún að Depp væri sífellt að hlusta á tónlist þegar tökur væru í gangi, því hann væri alltaf með einhverskonar hlustunarbúnað í eyranu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.