Lífið

Stakk sér á þúsund músagildrur

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir Gavin Free og Daniel Gruchy hafa um ára bil skemmt notendum Youtube með því að taka upp hinar ýmsu athafnir á miklum hraða og í hárri upplausn. Nú síðast tóku þeir upp á því að Daniel stökk af stiga á trampólín þar sem búið var að koma fyrir um þúsund spenntum músagildrum.

Það tók strákana um fjóra tíma að koma músagildrunum fyrir og eins og sjá má í myndbandi þeirra gekk það ekki áfallalaust fyrir sig. Hins vegar tók það bara fjórar sekúndur að taka upp myndbandið.

Það verður þó að segjast að Dan slapp lygilega vel frá þessu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.