Sport

Sjáðu Sunnu hugga Mallory Martin og allt sem gerðist á bakvið tjöldin | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
dsa
dsa dsa
Sunna Rannveig Davíðsdóttir, bardagakona úr Mjölni, lagði Mallory Martin í öðrum atvinnubardaga sínum á ferlinum í lok mars en bardaginn fór fram á Invicta 22-kvöldinu í Kansas.

Sunna hafði betur á dómaraúrskurði eftir jafnan bardaga en hún náði góðu höggi á Martin í fyrstu lotu. Það var allt undir í þriðju lotu þar sem Sunna var sterkari og hafði sigur.

Invicta er búið að gefa út myndband þar sem bardagi Sunnu Rannveigar og Mallory Martin sést frá mörgum hliðum og er sýnd mikið af efni sem gerðist bakvið tjöldin.

Þar má til dæmis sjá Sunnu Rannveigu hugga Martin eftir bardagann og viðtal við íslensku bardagakonuna þar sem hún ræðir sigurinn.

Myndbandið má sjá hér að neðan.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×