Fyrrverandi þjálfari Porto tekinn við Jóni Daða og félögum Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. maí 2017 12:31 Nuno Espírito Santo fer úr Meistaradeildinni í ensku B-deildina. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson, landsliðsmaður í fótbolta, er kominn með nýjan stjóra hjá félagsliði sínu Úlfunum í ensku B-deildinni en Paul Lambert var látinn fara í gær. Eins og búist var við var Portúgalinn Nuno Espírito Santo ráðinn til starfa en hann kemur til Wolves frá Porto. Undir hans stjórn hafnaði Porto í öðru sæti portúgölsku úrvalsdeildarinnar með 76 stig, sex stigum minna en meistarar Benfica. Nuno, eins og hann er kallaður, spilaði með Porto frá 2002-2004 og aftur frá 2007-2010 en lagði svo skóna á hilluna. Hann gerðist þjálfari Rio Ave árið 2012 og var þar í tvö ár áður en hann stýrði Valencia á Spáni 2014-2015. Hann kom svo aftur heim til Porto fyrir síðustu leiktíð. Úlfarnir eru að taka til í leikmannamálum hjá sér og hafa falið ofurumboðsmanninum Jorge Mendes, sem er líka Portúgali, að stýra leikmannakaupum sínum en hann er í miklum tengslum við fjárfestingahópinn Fosun sem á félagið. Það kom því engum á óvart að Portúgalinn Nuno Espírito Santo var ráðinn til starfa hjá Úlfunum tveimur dögum eftir að hann sagði upp hjá Porto.We are delighted to confirm the arrival of @Nuno as the club's new Head Coach. #WelcomeNuno pic.twitter.com/Tw0VeL7SPE— Wolves (@Wolves) May 31, 2017
Enski boltinn Mest lesið Skýrsla um Brynjar Karl: Geri tilraunir með börn og skorti fræðilegan grunn Körfubolti Hnefarnir látnir tala í Umhyggjuhöllinni Körfubolti „Þetta er hreinn og klár glæpur“ Körfubolti TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum Íslenski boltinn Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ Íslenski boltinn Gylfi valdið mestum vonbrigðum Íslenski boltinn Laugardalsvöllur tekur lit Fótbolti Þurftu að hætta keppni til að tryggja öryggi keppenda Sport Mesta rúst í sögu NBA Körfubolti Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Sjá meira