Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærkvöldi tilkynning þess efnis að búið væri að skvetta málningu á tvær bifreiðar og bifhjól í Vogunum. Þegar á vettvang var komið mátti sjá málningu víða á farartækjunum sem öll eru í eigu sama einstaklings. Lögregla rannsakar málið.
Þá hafa um tuttugu ökumenn verið kærðir fyrr of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann greiddi nær hundrað þúsundum króna, eða 97.500 kr. í sekt.
Sex ökumenn voru einnig stöðvaðir fyrir að hafa ekið á negldum dekkjum í rigningunni undanfarna daga. Brot af þessu tagi er dýrt spaug því greiða þarf fimm þúsund krónur í sekt fyrir hvert neglt dekk undir bílnum eftir 15. apríl.
Ökumenn sem óku við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun virðast þó flestir hafa verið með allt sitt á hreinu. Lögregla hafði sett upp umferðalokun og hafði eftirlit með ástandi og réttindum um 130 ökumanna sem þar fóru um.
Tveir voru kærðir fyrir brot á umferðarlögum því annar var ekki með ökuskírteini sitt meðferðis og hinn hafði ekki endurnýjað ökuskírteinið á tilsettum tíma. Hjá hinum 129 var allt í sóma.
