Nú er orðið ljóst hvaða heimili keppa til úrslita um fallegasta íslenska heimilið. Í samnefndri þáttaröð á Stöð 2 voru alls 27 heimili skoðuð af sérfræðingunum. Í þáttunum voru ávallt þrír sérfræðingar og þau voru; Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir.
Þrjú heimili voru heimsótt í hverjum þætti og fengu sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.
Lesendur Vísis hafa síðustu daga kosið þrjú heimili í úrslitaeinvígið. Fyrsti níu heimila riðillinn var nokkuð spennandi og var baráttan á milli hús eftir Högnu Sigurðardóttur arkitekt í Garðabæ, heimili Ásgeirs Kolbeins og Bryndísar og amerískrar villu á Selfossi. Svo fór að lokum að Högnuhúsið vann með 22 prósent atkvæða, en hin tvö enduðu bæði með 16 prósent.
Mesta spennan spennan var í öðrum riðli þar sem allt leit út fyrir að Högnuhús með innisundlaug í Brekkugerði myndi hafa sigur úr býtum en einbýlishúsið á Akureyri vann að lokum sterkan sigur með 30 prósent atkvæða. Sérfræðingarnir hrifust einmitt mjög af húsinu og töluðu um að það minnti á franska verslun.
Einbýlishúsið við Mývatn gjörsamlega rústaði sínum riðli með 48 prósent atkvæða.
Hér að neðan má taka þátta í lokakosningunni og stendur hún yfir fram á hádegi á þriðjudag.
1. Högnuhús í Garðabæ - Eitt af hundrað merkustu húsum 20. aldar í norður- og miðhluta Evrópu2. Fallegt einbýlishús á Akureyri3. Einstaklega fallegt einbýlishús við Mývatn
Lífið