Lífið

Svona á að ráðleggja túristunum okkar

Guðný Hrönn skrifar
Nína Hjördís veit hvernig á að leiðbeina túristum á Íslandi.
Nína Hjördís veit hvernig á að leiðbeina túristum á Íslandi. Mynd/Håkon Broder Lund
Markmið vefsins Travelade er að svala ólíkum þörfum túrista og Lífið leitaði til Nínu Hjördísar Þorkelsdóttur, ritstjóra vefsins, og spurði um hvað ætti að ráðleggja ferðamönnum á Íslandi.

1. Mæltu með einhverju sem samræmist áhugasviði þeirra

Ferðafólk er að sjálfsögðu ólíkt innbyrðis, með ólík áhugamál og lífsviðhorf. Ekki draga þá ályktun að allir ferðamenn vilji gera það sama, spurðu þá um áhugamál þeirra áður en þú mælir með einhverju.

2. Ekki gleyma að minnast á einbreiðu brýrnar

Það getur verið vandasamt að keyra á Íslandi. Einbreiðar brýr eru þekktar slysagildrur og algengari hér á landi en annars staðar. Erlendir ferðamenn hafa lent í slysum vegna óvarkárni við akstur yfir slíkar brýr. Svo er ekki úr vegi að minnast á að það er stórhættulegt að stoppa bíl á miðjum þjóðveginum, hvort sem það er til þess að ná ljósmynd eða fá sér ferskt loft.

3. Segðu þeim leyndarmál

Offjölgun ferðamanna hefur verið til umræðu upp á síðkastið og margir helstu ferðamannastaðir landsins eru orðnir yfirfullir. Af hverju ekki að mæla með einhverri lítt þekktri perlu?

4. Mæltu með einhverju sem er ókeypis

Verðlag á Íslandi er umkvörtunarefni margra túrista. Mín reynsla er sú að ferðafólk fari gjarnan í dýrar skoðunarferðir í staðinn fyrir að gera eitthvað sem kostar ekki neitt. Til dæmis er fullt af heitum náttúrulaugum á Íslandi sem gaman er að baða sig í og fjöllum sem æðislegt er að ganga á – alveg ókeypis.

5. Ekki telja ferðafólki trú um að það sé hlýtt á Íslandi

Ég hef stundum heyrt Íslendinga fullyrða, í samtali við ferðamenn, að það sé ekkert rosalega kalt á Íslandi. Þótt það sé rjómablíða í borginni getur verið ískalt annars staðar á landinu, sérstaklega uppi á hálendinu. Það getur verið stórhættulegt að vera illa klæddur á fjöllum, líka á sumrin.

6. Bentu þeim á að ganga snyrtilega um náttúruna

Svo má endilega ráða fólki frá því að ganga örna sinna úti í náttúrunni, það er auðvitað óásættanlegt.



Það vill enginn enda á djamminu í Gore-Tex jakka!
7. Kenndu þeim að klæða sig

Ég hef oft lent í því að hitta ungt fólk á ferðalagi um Ísland sem er í algjörum mínus yfir því að hafa bara tekið með sér útivistarföt en engin „venjuleg“ föt. Ég hitti meðal annars stelpu um daginn sem sagði að henni hefði liðið eins og hálfvita þegar hún fór á tónleika í Reykjavík í Gore-Tex jakkanum sínum.

8. Blandaðu geði

Það getur verið mjög forvitnilegt að lenda á kjaftatörn við ferðamenn og kynnast því hvernig þeir upplifa landið. Mörgum þeirra finnst heldur ekki ónýtt að kynnast heimamönnum.

9. Segðu þeim að sleppa myndavélinni

Það er allt öðruvísi að njóta náttúrunnar þegar maður er ekki í sífellu að reyna að ná góðum ljósmyndum. Mér finnst sniðugt að ráðleggja ferðamönnum að prófa að sleppa því að taka myndavélina/símann með í heilan dag og upplifa frelsið sem því fylgir.

10. Ráðleggðu þeim að drekka kranavatn

Sumir útlendingar kaupa vatn á flösku á Íslandi og gera sér ekki grein fyrir gæðum hins íslenska kranavatns. Það er um að gera að benda þeim á að kranavatn á Íslandi er tandurhreint og því algjör óþarfi að eyða peningum í vatn á flöskum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×