Innlent

Rúmur milljarður á hvern kílómetra Borgarlínunnar

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Hér má sjá dæmi um gatnaskipulag Borgarlínunar.
Hér má sjá dæmi um gatnaskipulag Borgarlínunar. SSH
Tillögur að Borgarlínunni, nýju umhverfisvænu samgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu, verða kynntar í Salnum í Kópavogi kl 15 í dag. Vagnar Borgarlínunnar verða rafknúnir, ferðast í sérrými og fá forgang á umferðarljósum. Ástæðan fyrir þessu nýja samgöngukerfi er fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu en búist er við að íbúum fjölgi um 40% á næstu 25 árum. Þá hefur vaxandi straumur ferðamanna einnig áhrif.

Í fréttatilkynningu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu segir að markmiðið með Borgarlínunni sé að auka vægi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Stutt verður á milli vagna og muni hraði í samgöngum aukast.

Borgarlínan sé nauðsynleg þróun í samgöngum, sér í lag ef ferðavenjur fólks breytast ekki. Óbreytt ástand geti, með auknum fólksfjölda, aukið umferðaröngþveiti og minnkað pláss. 

Fyrstu tillögur að leiðum Borgarlínunnar, sem teygja sig vestur frá Eiðistorgi á Seltjarnarnesi austur að Kórnum í Kópavogi og norður frá Háholti í Mosfellsbæ suður að Völlunum í Hafnarfirði.SSH
Á fundinum í dag verða kynntar línuleiðir og helstu stöðvar Borgarlínunnar. Einnig verður farið yfir breytingar á svæðisskipulagi til ársins 2040 á höfuðborgarsvæðinu og sveitarfélagana sex sem standa að þessu nýja samgönguverkefni.

Búist er við því að Borgarlínan verði allt að 57 km að lengd. 

Samkomulag um undirbúning Borgarlínunnar var undirritað í desember 2016. Verkefninu verður áfangaskipt. Stefnt er að því að endanlegar tillögur um legu línunnar liggi fyrir um mitt ár 2017 og að undirbúningi fyrir fyrsta áfanga ljúki í byrjun árs 2018.
Horft er til þess hvernig höfuðborgarsvæðið mun þróast næstu árin og það mat verður haft til hliðsjónar við skipulagningar Borgarlínunnar. Endanlegar tillögur eiga að liggja fyrir í lok sumars og stefnt er að því að undirbúningi að fyrsta áfanganum verði lokið í byrjun árs 2018 en framkvæmdin verður gerð í áföngum.

Kostnaður er áætlaður 1,10-1,15 milljarður króna á hvern kílómetra miðað við verðlag í janúar 2017. Heildarkostnaður er áætlaður 63-70 milljarðar króna. Samkomulag um undirbúning Borgarlínunnar var undirritað af borgarstjóra og bæjarstjóra sveitarfélaganna í desember 2016.

Nánari upplýsingar um framkvæmdina má finna á vef Borgarlínunnar.

Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30.


Tengdar fréttir

Borgarlína og aðrar samgöngulínur

Fjármagn til samgöngumála er og hefur verið af skornum skammti. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi verður nýsamþykkt samgönguáætlun skorin niður um 13 milljarða og væntingar margra verða að engu.

Hvað er Borgarlína?

Borgarlína er vinnuheiti yfir öflugt almenningssamgöngukerfi sem fyrirhugað er á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlínan keyrir í sérrými að öllu eða mestu leyti og er þannig ekki háð annarri umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×