Veðurspáin lofar engri sérstakri blíðu um hvítasunnuna en langt helgarfrí býður upp á notalegar stundir, bústaðarferð eða bílífi heima.
Meistararnir Stefán Melsted og Andri Ottesen á Café Paris tóku því vel að gefa lesendum uppskriftir að girnilegum bröns. Niðurstaðan varð egg Benedict og egg Norwegian, tveir mismunandi réttir sem innihalda nánast það sama.
„Það er ekki jafn flókið að útbúa þessa rétti og lítur út fyrir og tilvalið að dunda sér við það í morgunsárið,“ segir Stefán. Hann minnir á að mikilvægt sé í allri matreiðslu að öll hráefni séu af bestu fáanlegu gæðum, þá verði útkoman alltaf betri en ella.
Egg Benedict eða egg Norwegian
Uppskrift fyrir 4 (eggjarétturinn heiti Benedict ef hann er með kanadísku beikoni (skinku í þessu tilfelli) en Norwegian með sneiddum reyktum laxi í stað skinkunnar).
2 l vatn
2 dl lageredik
4 brauðsneiðar, ristaðar
8 vistvæn egg
200 g ferskt spínat
1 stk. skarlottulaukur
8 sneiðar lúxusskinka (reyktur lax eða silungur fyrir Norwegian)
2 dl hollandaise-sósa
Smátt saxaður graslaukur
Salt og pipar
Hollandaise-sósa
3 eggjarauður
1 tsk. salt
Hnífsoddur cayenne-pipar
1/2 sítróna
300 g hreinsað bráðið smjör
Setjið allt nema smjörið saman í skál og þeytið yfir lágum hita þangað til blandan fer að þykkna og verða froðukennd. Hellið smjörinu hægt og rólega saman við og hrærið vel allan tímann. Passið sérstaklega vel að sósan hitni ekki um of því þá getur hún skilið sig. Smakkið til með salti og sítrónusafa og fínt rifnum berki af ferskri sítrónu.

Fyrir hleyptu eggin
Setjið pott yfir hita með ríflegu magni af vatni blönduðu um matskeið af salti og um einum desilítra af ediki fyrir hvern lítra af vatni. Gott er að vera með pott sem er vel víður og þykkbotna.
Náið upp suðu og lækkið svo hitann. Vatnið á að vera rétt undir suðumarki fyrir hleyptu eggin. Gott er að brjóta eggin út í litla skál, gera lítinn hvirfil í vatnið í pottinum, hleypa eggjunum svo út í og láta þau liggja í um það bil 3 til 4 mínútur. Best er að veiða eggin upp með gataskeið eða fiskispaða og leggja á þurrt viskastykki.
Samsetning
Steikið spínatið á vel heitri pönnu í olíu með fínt skornum skarlottulauk og örlitlu af hvítlauk.
Grillið skinkusneiðarnar örstutt á heitu grilli eða steikið á pönnu, ristið brauðsneiðarnar og skerið hverja í tvennt. Raðið brauðsneiðunum á disk, einni á hvern, skorinni í tvennt, setjið skinkusneið á hverja sneið og deilið spínatinu þar ofan á.
Komið svo hleyptu eggjunum fyrir ofan á spínatinu og um það bil matskeið af hollandaise sósu ofan á hvert egg. Skreytið með fínt söxuðum graslauk.
„Í klassískri útgáfu eru notaðar enskar múffur undir eggin en okkur finnst gott ristað brauð vera góður staðgengill. Á Café Paris notum við brioche brauð sem við bökum sjálf. Ef menn treysta sér er hægt að finna uppskrift að slíku brauði á netinu en annars er gott að kaupa til dæmis gott súrdeigsbrauð í bakaríi og rista,“ segir Atli.
