Átta mánaða fangelsi fyrir veita manni „gapandi skurð“ á Flúðum Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júní 2017 15:55 Tjaldstæðið á Flúðum. Vísir/Vilhelm
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 8 mánaða fangelsi fyrir „sérstaklega hættulega líkamsárás“ á Flúðum árið 2014. Maðurinn, sem er um þrítugt, var dæmdur fyrir að skera karlmann með dúkahnífi í hægri kálfavöðvann, með þeim afleiðingum að hann hlaut 30 sentimetra langan og gapandi skurð á fótleggnum sem sauma þurfti saman með 34 sporum. Árásin átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn Útlagann á Flúðum og er rakin til ósættis mannanna vegna afskipta árásarmannsins af vinkonum þolandans.Vísir greindi frá því á sínum tíma að lögreglu hafi borist tilkynning um líkamsárás á veitingastaðnum Útlaganum á Flúðum klukkan 02:05 aðfaranótt laugardagsins 2. ágúst 2014. Á vettvangi afhenti dyravörður veitingastaðarins lögreglu lítinn hringlaga dúkahníf og vísaði lögreglu á karlmann. Í frumskýrslu lögreglu segir að nokkuð af blóði hafi verið á framanverðum gallabuxum mannsins, einkum á framanverðum lærum. Þá hafi blóð einnig verið sjáanlegt á skóm og nokkrir dökkleitir blettir hafi verið framan á bol hnífamannsins, sem einnig var blóðugur á höndum.Sjá einnig: Maður skorinn illa með dúkahníf á FlúðumMaðurinn neitaði sök fyrir dómi og bar við minnisleysi vegna ölvunar. „Hins vegar staðfesti ákærði fyrir dómi að hann hafi játað sök á vettvangi, nánar til tekið að hafa verið með dúkahnífinn og að hafa beitt honum í átökum. Aðspurður um ástæðu þess að hann neiti nú sök kvaðst ákærði hafa verið í áfalli og því getað játað hverju sem var,“ segir í dómnum. Maðurinn sagðist muna fátt að öðru leyti en að tveir strákar, sem hann hafi ekki þekkt, hafi komið að honum og þeir farið að rífast. Að sögn vitna hafi ósættið komið til vegna „ætlaðra afskipta ákærða af stúlkum sem í kjölfarið hafi leitað til brotaþola og vina hans á dansleiknum,“ eins og það er orðað. Rætt hafi verið um „runna“, en eftir það bresti minni mannsins, allt hafi orðið svart og hann rankað við sér sitjandi á stól inni á veitingastaðnum. Hins vegar gat maðurinn ekki gert grein fyrir því hvernig hann hafi komist þangað.Slasaði sjálfan sig Taldi hann sig hafa misst meðvitund við högg sem hann hafi fengið annað hvort í andlit eða hnakka. Þegar hann hafi rankað við sér hafi hann séð skurð á vinstri hendi sinni, þvert yfir úlnlið. Í læknisvottorði kemur fram að saumuð hafi verið 24 spor í vinstri úlnlið mannsins og hafi skurðurinn verið um 12-14 sentimetra langur og hálfs til eins sentimetra djúpur. Er skurðurinn rakinn til hnífsins sem hann var með á sér. Þegar hann hafði náð áttum segist maðurinn hafa sé bráðaliða hlaupa framhjá á leið á útisvæðið og hafi nærstaddir rætt um að einhver væri illa slasaður. Kvaðst maðurinn þá hafa tekið upp lyklakippuna, sem dúkahnífur hafi verið festur við, og hafi hnífurinn verið útataður í blóði. Því hafi hann dregið þá ályktun að hann hafi verið þar að verki. Við það hafi hann farið í hálfgert lost og kallað í dyravörð og afhent honum hnífinn. Staðfesti maðurinn þá að hafa haft dúkahníf með sér á dansleikinn en hnífinn hafi hann notað til að opna kassa í vinnunni.Lengi að átta sig á því sem gerðist Þolandinn sagði fyrir dómi að í slagsmálunum hafi hnífamaðurinn ýtt í bringu hans og hafi hann þá kýlt til baka krepptum hnefa. „Við það hafi ákærði fallið í jörðina. Kvaðst brotaþoli hafa gripið í jakka ákærða sem þá hafi gripið í fót sinn og skorið í gegnum gallabuxur sem brotaþoli hafi klæðst, en allt þetta hafi tekið stutta stund. Kvaðst brotaþoli ekki hafa séð hvað ákærði hafi verið með í hendi og hafi það tekið hann nokkurn tíma að átta sig á hvað gerst hefði. “ Hnífamaðurinn hlaut sem fyrr segir 8 mánaða fangelsisdóm sem þó er skilorðsbundinn vegna tafa á meðferð málsins af hálfu lögreglunnar og ákæruvaldsins. Þá var honum gert að greiða þolandanum 500 þúsund krónur og standa straum af öllum sakarkostnaði. Mynd af skurði þolandans má sjá hér að neðanFótleggur þolandans eftir árásina.vísir
Mest lesið Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Erlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi Innlent Fleiri fréttir Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Sjá meira