Lífið

Jónsmessuhátíðin eins og eitt stórt ættarmót

Guðný Hrönn skrifar
Líf og fjör á hátíðarhöldunum í fyrra sumar.
Líf og fjör á hátíðarhöldunum í fyrra sumar.
Jónsmessuhátíð á Hofsósi, sem haldin er í fimmtánda skipti um helgina, hefur fyrir löngu fest sig í sessi.

„Þetta er eins og eitt stórt ættarmót,“ segir Guðrún Þorvaldsdóttir, sem er einn skipuleggjendanna og hefur verið frá upphafi hátíðarinnar. Auk hennar hafa þeir Kristján Jónsson, Bjarni Þórisson og Sigmundur Jóhannesson annast umsjón undanfarin fimmtán ár.

„Við erum fjögur sem höfum séð um að sitja í nefndinni öll árin. Þetta kom þannig til að við tókum þátt í verkefninu Breytum byggð, sem var í gangi hér í bænum, og var óhemju góð þátttaka meðal bæjarbúa. Í lokin tók við hópavinna og þar tók hver hópur fyrir sig eitthvað sérstakt. Við fjögur fengum þá þessa hugmynd að búa til hátíð og það má segja að samstarfið hafi gengið gríðarlega vel, hér erum við enn,“ segir Guðrún. Hún segir jafnframt að gott samstarf við félögin í bænum og fólkið á svæðinu skipti lykilmáli og segir röggsamlega: „Ef ekki væri fyrir að allir hjálpuðust svona mikið að þá væri hér engin hátíð.“

„Allur ágóðinn sem verður til við hátíðarhöldin verður eftir í bænum. Hann rennur aftur til félaganna á svæðinu. Aftur í fótboltafélagið, Lions, björgunarsveitina og til eldri borgaranna sem standa vaktina í kjötsúpusölunni. Svo höfum við í þessi fimmtán ár getað stutt við fólk sem tengist svæðinu, sem lent hefur í slysum eða veikindum. Við höfum getað lagt mörgum lið og það er ofboðslega gott, “ útskýrir hún stolt.

Af nægu er að taka á hátíðinni sem sett verður í kvöld. Herlegheitin hefjast með Jónsmesugöngu. Eldri borgarar taka svo við og skenkja kjötsúpu og svo verður kvöldvöku slegið upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.