Björn Ingi mátar sig við borgarstjórn Jakob Bjarnar skrifar 13. júní 2017 14:35 Björn Ingi nú og þá. Ýmsilegt bendir til þess að hann horfi nú til baka og vilji taka upp þráðinn þar sem frá var horfið -- í borgarstjórn.
Ýmislegt bendir til þess að nýtt framboð í borginni sé í farvatninu og það verði Björn Ingi Hrafnsson sem muni leiða það. Eiríkur Jónsson greinir frá því, með sínum hætti, á vef sínum að Björn Ingi Hrafnsson, sé að íhuga það að bjóða sig fram í næstu sveitarstjórnarkosningum sem eru eftir tæpt ár. Fyrirsögnin er í stíl Eiríks, „Björn í borg?“, en þá er sem afskiptum Eiríks af þeirri frásögn ljúki. Ýmislegt rennir stoðum undir það að þarna sé um annað og meira en vangaveltur að ræða, að hreinlega sé verið að þreifa á kjósendum með fulltingi fjölmiðla. Og í hinu valkvæða linkasafni á Eyjunni, hvar Björn Ingi Hrafnsson er nú orðinn ritstjóri eftir rekstrarvandræði fjölmiðlaveldis hans og vendingar því samfara, er tengt skilmerkilega á þær vangaveltur sem birtast í fréttinni.Frétta og tenglasíðan Eyjan gerir sitt til að vekja athygli á vangaveltum um Björn Inga og upprifjun á ágætum pólitískum ferli hans.Þegar fyrirsögninni sleppir kveður við allt annan tón en þeir þekkja sem lesið hafa fréttir eftir Eirík lengi; allt annan stíl en þann sem má heita einstakur í fjölmiðlasögunni. Þar er sem einhver allt annar haldi um penna. „Heyrst hefur að í farvatninu sé mögulegt nýtt þverpólitískt framboð í borgarpólitíkinni. Margir eru orðnir langþreyttir á lóðaskorti meirihlutans og baráttu gegn einkabílnum, en minnihluti Sjálfstæðisflokks og framsóknar og flugvallarvina hefur ekki náð vopnum sínum.“Björn Ingi vekur athygli í þætti um skipulagsmál og lóðaskortÞannig hefjast vangaveltur sem áhugamenn um pólitík lesa í það eitt að Björn Ingi séu nú að velta fyrir sér möguleikum á endurnýjuðum pólitískum frama. En, eignarhald á vefnum EiríkurJónsson.is er að einhverju leyti í höndum DV, sem tilheyrir Pressu-samstæðunni sem einnig stendur að Eyjunni. Í pistlinum segir að hugmyndin sé að stofna breiðfylkingu um nokkur einföld atriði „sem stór hluti borgarbúa getur sameinast um, ekki síst þeir sem búa austarlega í borgarlandinu og finnst lítið hafa verið hlustað á sig.“ Og áfram er haldið: „Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi borgarfulltrúi, vakti mikla athygli á dögunum er hann ræddi skipulagsmál og lóðaskort í borginni í Silfri Egils við Heiðu Kristínu Helgadóttur, einn helsta hugmyndafræðing meirihlutans. Er jafnvel talið að að hann hyggi á framboð.“Frístundakortið heldur nafni Björns Inga á lofti um ókomna tíðMenn mega leita lengi á timarit.is áður en þeir rekast á nokkuð í líkingu við svo loðinn véfréttastíl í frétt sem merkt er „–eir“. Sá sem heldur um penna greinir frá því að Björn Ingi hafi sagt „óvænt“ af sér sem borgarfulltrúi í kjölfar innanflokksdeilna í Framsóknarflokknum, eins og það er orðað. „Hann var formaður borgarráðs þegar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var borgarstjóri og einnig þegar Dagur B. Eggertsson varð fyrst borgarstjóri í hundrað daga. Sá meirihluti féll þegar sjálfstæðismenn sóttu Ólaf F. Magnússon úr veikindafríi og gerðu öllum að óvörum að borgarstjóra. Sama dag og Ólafur tók við sem borgarstjóri reyndu sjálfstæðismenn mikið að fá Björn Inga til að hætta við að segja af sér, en honum varð ekki haggað.Guðfinnu, borgarfulltrúa Framsóknarmanna, þykir þessar vangaveltur grátbroslegar.Eitt er það mál sem Björn Ingi barðist fyrir í borgarpólitíkinni og heldur nafni hans á lofti, en það er frístundakortið sem tugþúsundir barna og unglinga hafa nýtt sér á undanförnum árum.“ Þeir sem enn eru að velta fyrir sér hver haldi þarna um penna höggva eftir því að sá þekkir pólitíska sögu Björns Inga í borgarstjórn harla vel.Telur Björn Inga skrifa um sjálfan sigGuðfinna Jóh. Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík, velkist hvergi í vafa um hver höfundur fréttarinnar á vef Eiríks er, nefnilega téður Björn Ingi, í það minnsta séu skrifin að hans undirlagi. Sem er athyglisvert út af fyrir sig, fyrir alla áhugamenn um pólitíkina í borginni: „Nei en krúttlegt, Björn Ingi ritstjóri Eyjunnar búinn að setja þessa frétt um sjálfan sig inn á Eyjuna, spurning hvort samkvæmisleiknum sé ekki bara lokið og Björn Ingi og Villi Vill fyrrrverandi borgarstjóri taki þetta ekki bara saman næsta vor,“ skrifar Guðfinna Jóh. og lætur blikkandi broskall fylgja. En, varla verður hjá því litið að það hlýtur að fara um Framsóknarfólk í borginni ef þar blasir við frekari klofningur en þegar er innan þess flokks.
Sveitarstjórnarkosningar Mest lesið Segist afhjúpa sannleikann í „tengdamömmumálinu“ Innlent Kominn tími til að rapparar og áhrifavaldar axli ábyrgð Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Björguðu dreng úr gjótu Innlent Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Innlent Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Erlent „Það eru ekki skattahækkanir“ Innlent Ber ekki ábyrgð á tjóni stuðningsfulltrúa sem nemandi beitti ofbeldi Innlent Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Innlent Friðrik Ólafsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Blés til skyndifundar vegna innflutnings gerviópíóða Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Blóðbað, þingmenn ganga á dyr og ógnin við Reykjavík Forsetahjónin á leið til Noregs Lýsa eftir Svövu Lydiu Kristrún ein í framboði til formanns Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi saka hvor aðra um brot á siðareglum „Það eru ekki skattahækkanir“ Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Áfrýja og stofna félag um réttinn til að mótmæla Munu ekki hlaupa síðustu metrana í Geirsgötu fyrr en 2026 Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Borgarfulltrúi Pírata í veikindaleyfi Óvenjumargir sem sæta gæsluvarðhaldi í fangelsum landsins Ber ekki ábyrgð á tjóni stuðningsfulltrúa sem nemandi beitti ofbeldi Óbólusettir ættu að huga að sinni stöðu fyrir ferðalög „Sá merkasti sem ég hef nokkurn tímann kynnst“ Rauðir markaðir og yfirfull fangelsi Dæla tölvupóstum á ráðherra Segir stjórn sósíalista ræða „pólitískar hreinsanir“ fyrir flokksþing Segist afhjúpa sannleikann í „tengdamömmumálinu“ Bændur fá bætur fyrir hörmungasumarið í fyrra Björguðu dreng úr gjótu Kominn tími til að rapparar og áhrifavaldar axli ábyrgð Friðrik Ólafsson er látinn Órói mældist við Torfajökul Oddviti ætlar ekki að hætta sem formaður Veiðifélags Þjórsár Sagði Sólveigu Önnu tala eins og Trump: „Horfðu í spegil!“ Tvær unglingsstúlkur í haldi: „Þetta er fólkið sem verið er að hagnýta“ Sjá meira