Lífið

Katy Perry raðaði bestu elskhugunum upp eftir styrkleika

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fínn listi.
Fínn listi. Vísir/garðar
Í spjallþættinum Late Late show með Bretanum James Corden er oft á dagskrá liðurinn Spill Your Guts or Fill Your Guts sem gengur út á það að maður á annað hvort að svara erfiðri spurningu eða borða einhvern algjöran viðbjóð.

Á dögunum var söngkonan Katy Perry gestur hjá Corden og tók hún þátt í dagskráliðnum.

Perry fékk margar skemmtilegra spurningar en ein þeirra vakt sérstakalega mikla athygli. Það var spurningin; Hver er bestur í rúminu af þessum mönnum, John Mayer, Diplo eða Orlando Bloom?

Hún var beðin um að raða þeim í röð og segja hver þeirra væri bestur.

Svarið var; „Þeir eru allir frábærir elskhugar, og ég myndi stunda kynlíf með þeim öllum þegar ég losna út úr þessum þætti.“

Corden náði samt upp úr Perry röðinni og var hún svona:

1. Mayer

2. Bloom

3. Diplo

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.