Frank de Boer að taka við Crystal Palace Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. júní 2017 07:56 Frank de Boer er að mæta í ensku úrvalsdeildina.
Frank de Boer, fyrrverandi landsliðsmaður Hollands, verður næsti knattspyrnustjóri Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni en honum hefur verið boðið starfið og eru samningaviðræður langt komnar. BBC greinir frá. De Boer var fyrsti maður á blaði hjá stjórnarformanninum Steve Parish og er honum að verða að ósk sinni. Hollendingurinn tekur við af Stóra Sam Allardyce sem bjargaði liðinu frá falli á síðustu leiktíð en hætti svo í þjálfun. De Boer hefur verið atvinnulaus síðan í nóvember á síðasta ári þegar hann var rekinn frá Inter á Ítalíu eftir aðeins 85 daga í starfi. Hann var áður þjálfari Ajax í hollensku úrvalsdeildinni og vann deildina þar fjórum sinnum í röð frá 2011-2015 en Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður Íslands, var hluti af því sigursæla liði. Hollendingurinn lét af störfum hjá Ajax degi eftir að missa af titlinum til PSV Eindhoven á lokadegi deildarinnar 2016 en hann er sagður hafa heillað stjórnarmenn Palace með fróðleik sínum um félagið og hugmyndafræði sinni í fótboltanum. Þá er því haldið fram að auðmýkt hans á fundum með forráðamönnum Palace hafi verið gríðarleg, sérstaklega í ljósi alls þess sem hann afrekaði sem leikmaður. Þetta allt saman heillaði Palace-menn upp úr skónum. Frank de Boer vann 16 stóra titla á glæstum ferli sem leikmaður með Ajax, Barcelona og Al Rayyan í Katar. Hann hóf þjálfaraferilinn í akademíu Ajax, varð svo aðstoðarþjálfari hollenska landsliðsins áður en hann tók við aðalliði Ajax.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira