Innlent

„Eins og verið sé að breyta lögum til að komast yfir húsið“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Steinnes er hið glæsilegasta, alls tæpir 300 fermetrar á tveimur hæðum.
Steinnes er hið glæsilegasta, alls tæpir 300 fermetrar á tveimur hæðum. Níels Karlsson
Framhaldsskólakennarinn Níels Karlsson segir farir sínar ekki sléttar við Akureyrarbæ. Honum var gert að selja bænum hús sitt, sem hann reisti frá grunni fyrir rúmum 30 árum, því samkvæmt fyrra aðalskipulagi stóð til að rífa húsið svo að rýma mætti fyrir bættri íþróttaaðstöðu Þórs.

Nýtt aðalskipulag bæjarins gerir hins vegar ráð fyrir því að einbýlishúsið fái að standa og verði nýtt til útleigu. Níels og eiginkona hans verða engu að síður að yfirgefa húsið nú um mánaðamótin eftir 38 ára búsetu á Akureyri. Honum finnst þau hafa lent í höndum þjófa.

Þór í bakgarðinum

Níels reisti húsið, Steinnes, árið 1985 á grunni eldra húss sem hann hafði keypt sex árum áður. Húsið stóð þá steinsnar frá malarvelli Þórs en nokkrum árum síðar hóf íþróttafélagið mikla uppbyggingu á svæðinu. Lagður var nýr grasvöllur og félagsheimili reist.

Svæði Þórs hélt áfram að þróast umhverfis Steinnes og er nú svo komið að húsið er nánast miðpunktur íþróttasvæðisins - með knattspyrnuvelli til vesturs og austurs.

 

 

Steinnes, markað með rauðum hring, stendur á miðu ÞórssvæðinuGoogle Maps
Níels segir sambúðina við Þórsara þó alltaf hafa verið ánægjulega. „Samskipti okkar við Þór hafa alltaf verið góð og við notið þess að fylgjast með íþróttaviðburðum þeirra, enda voru öll börnin okkar Þórsarar,“ segir Níels.

Hann lýsir því að í lok árs 2007 hafi skipulagsstjóri og lögmaður Akureyrarbæjar tjáð honum að samkvæmt deiliskipulagi bæjarsins, sem gilti frá 2005-2018, stæði til að rífa Steinnes. Í því stóð: „Íbúðarhúsið Steinnes skal víkja skv. þessu skipulagi, en lóð Steinnes hefur 1155 m2 erfðafestu.“

Akureyrarbær hafi skipulagt íþróttasvæði Þórs umhverfis húsið og ætlaði að fara að endurbyggja íþróttarvöllinn og byggja áhorfendastúku í næsta nágrenni Steinness.

Nauðbeygð að selja

Hann hafi þá fengið tvo kosti; annað hvort að selja Akureyrarbæ húsið eða ellegar tæki bærinn það eignarnámi. Níels segir síðari kostinn ekki hafa heillað og því hafi þau hjón verið nauðbeygð til að selja bænum Steinnes.

Þau, í samráði við lögfræðing, hafi því samið við Akureyrarbæ um að hann keypti húsið gegn því að þau fengju að leigja af bænum húsið til 1. júlí 2014.

Svona leit Steinnes út þegar Níels festi kaup á því undir lok áttunda áratugarins.Níels Karlsson
„Þetta voru myrkir dagar í okkar lífi og ótrúleg framkoma Akureyrarbæjar gagnvart okkur, en lögin voru þeirra með vísan í aðalskipulag bæjarins,“ segir Níels.

Þau hafi fengið síðar fengið 3 ára framlengingu á leigu vegna atvinnu, til 1. júlí 2017. Þau fluttu því um mánaðamótin úr húsinu og hafa sett stefnuna á Hafnarfjörð.

Nýtt aðalskipulag allt annað

Eftir að þau yfirgáfu húsið segist Níels hafa gert ráð fyrir því að nú yrði húsið rifið, eins og aðalskipulagið gerði ráð fyrir. Annað sé hins vegar að koma á daginn með nýsamþykktu deiliskipulagi fyrir Akureyrarbæ, sem gildir frá 2018 til 2030.

„Í því stendur að Steinnes eigi að nota til íbúðar. Með þessum hætti hefur Akureyrarbæ tekist að taka af okkur einbýlishús okkar með (ó)löglegum hætti. Nú skilst okkur að í stað þess að húsið sé rifið, sem var lögleg forsenda þess að þeir komust yfir hús okkar 2008, þá muni Akureyrarbær lána eða leigja húsið til innflytjenda að búa í.“

Steinnes var endurbyggt frá grunni því rakavörnin hafði verið sett öfug á allt húsið og allir útveggir þess að hruni komnir.Níels Karlsson
Í samtali við Vísi segir Níels að þau hjón hafi fyrst fengið veður af þessum áformum bæjarins fyrir um tveimur vikum síðan. Frestur til þess að koma með ábendingar og athugasemdir við skipulagið áður en það fór í formlegt auglýsingaferli rann út 20. apríl.

„Maðurinn sem tók við lyklunum okkar á mánudaginn sagði að húsið skyldi nýtt með þessum hætti. Fram að því hafði enginn sagt eitt einasta orð við okkur,“ segir Níels og bætir við:

„Þetta er ósvífið, siðlaust í rauninni. Það er eins og verið sé að breyta lögum til að komast yfir húsið.“

Hann segist þakklátur fyrir að hafa fengið að leigja húsið - „en nú finnst okkur sem við höfum lent í höndum þjófa og í ljósi þessarar sögu er ekki að undra að við erum nú að flytja á brott frá Akureyri eftir 38 ára búsetu þar.“

Ekki náðist í Bjarka Jóhannesson, sviðsstjóra Skipulagssviðs Akureyrar, við vinnslu þessarar fréttar. Uppfært klukkan 13:45. Ekki náðist heldur í Eirík Björn Björgvinsson, bæjarstjóra Akureyrar.

Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður fjallaði um húsið í innslagi um Þórsvöllinn í Pepsi-mörkunum árið 2011. Innslagið má sjá að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×