Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Íslenskir ferðaþjónustuaðilar hafa látið draum bandarískrar sextán ára stúlku, sem þjáist af slímseigjusjúkdómnum, rætast. Hana dreymdi um að heimsækja Ísland og nú er hún komin hingað og fær að upplifa landið með einstökum hætti. Við hittum hana í fréttum Stöðvar tvö.

Þar kynnum við okkur líka mengunarslys í Vesturbænum og skoðum nýjan afþreyingarmöguleika á Íslandi, svokallaða særútu sem kemst yfir bæði á láði og legi.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 hefjast kl. 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×