Hagar vildu selja Heilsuhúsið en ekki ganga lengra í sölu eigna Kristinn Ingi Jónsson skrifar 19. júlí 2017 09:30 Samkeppniseftirlitið ógilti kaup Haga á Lyfju. Vísir/Valli
Stjórnendur smásölurisans Haga lýstu sig reiðubúna til þess að selja verslanir Heilsuhússins og heildverslunina Heilsu til þess að þóknast Samkeppniseftirlitinu. Þeir vildu hins vegar ekki ganga lengra og töldu að Lyfja myndi bíða „verulegt“ fjárhagslegt tjón af frekari sölu eigna. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að heimila ekki kaup Haga á Lyfju. Ákvörðunin var birt á vef eftirlitsins í gær. Í ákvörðuninni er rakið að stjórnendum Haga hafi verið tilkynnt 26. maí það mat Samkeppniseftirlitsins að kaupin röskuðu samkeppni. Í kjölfarið lýstu stjórnendurnir sig reiðubúna til þess að gangast undir tiltekin skilyrði sem væru til þess fallin að koma í veg fyrir þau skaðlegu samkeppnislegu áhrif sem eftirlitið taldi stafa af kaupunum. Á meðal skilyrðanna var að Hagar myndu selja frá sér heildverslunina Heilsu og verslanir Heilsuhússins, sem hafa verið í eigu Lyfju um árabil. Auk þess skuldbundu Hagar sig meðal annars til þess að hrófla ekki við staðsetningum apóteka Lyfju í Borgarnesi, Reykjanesbæ og á Egilsstöðum. Samkeppniseftirlitið taldi hins vegar tillögur Haga ekki duga til. Þær væru ekki fullnægjandi til þess að eyða þeim skaðlegu áhrifum sem kaupin hefðu annars á samkeppni. Stjórnendur Haga óskuðu eftir fundi með Samkeppniseftirlitinu 11. júlí síðastliðinn þar sem ræða átti möguleika á fleiri skilyrðum, sem fælust þá í frekari sölu á eignum umfram það sem Hagar hefðu þegar lagt til. Í símtali lögmanns Haga við fulltrúa Samkeppniseftirlitsins kom fram að til álita kæmi af hálfu Haga að selja frá sér tilteknar verslanir, til dæmis þær þar sem velta á snyrtivöru er hvað mest. Fundurinn fór fram daginn eftir, 12. júlí, en þar kom ekki fram nein ósk af hálfu Haga um frekari skilyrði. Sagði lögmaður Haga að við nánari skoðun félagsins á mögulegri sölu frekari eigna hefði komið í ljós að Lyfja hefði beðið mikinn skaða af. Þær einingar sem félagið þyrfti að selja gætu heldur ekki talist söluvænar og kaupendahópurinn væri fámennur. Því væri ljóst að fjárhagslegt tjón af frekari uppskiptingu Lyfju yrði verulegt.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Sjá meira